Uppgjöri Icelandair frestað, hagnaður eykst um 2 milljarða 4. nóvember 2009 10:31
Birtingu árshlutareiknings Icelandair hefur verið frestað. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi er brúttóhagnaður (EBITDA) 8,4 milljarðar í þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 6,2 milljarða á sama tíma 2008. Í tilkynningu segir að birtingu árshlutareiknings 30.9.2009, sem kannaður er af endurskoðendum félagsins, hefur verið frestað fram í viku 49. Eins og fram hefur komið í upplýsingum frá félaginu er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu þess. Þeirri vinnu miðar ágætlega en er ekki lokið og vegna þeirrar vinnu dregst gerð árshlutareiknings félagsins. Reiknað er með að mikilvægum þáttum í endurskipulagningunni ljúki í nóvember. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi var heildarvelta Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi 53,7 milljarðar króna og jókst um 29% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA var 8,4 milljarðar króna en var 6,2 milljarðar króna á sama tímabili í fyrra. Afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára. Á tímabilinu janúar - september var heildarvelta Icelandair Group 108,1 milljarður króna og jókst um 28% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA var 7,5 milljarðar króna en var 7,2 milljarðar króna 2008. Afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára. Handbært fé í lok september nam 6,1 milljarði króna en var 7,4 milljarðar í lok september 2008. „Rekstarafkoma þriðja ársfjórðungs er langt umfram upphaflegar áætlanir ársins og ef horft er á rekstrarafkomu fyrir fjármagnsliði er um verulegan rekstrarbata að ræða frá fyrra ári en afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára," segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group í tilkynningunni. „Almennt séð eru félög innan samstæðunnar að skila góðri afkomu á þriðja ársfjórðungi. Í erfiðu árferði, hefur starfsmönnum samstæðunnar með öflugu markaðsstarfi erlendis og kostnaðaraðhaldi tekist að skila góðri rekstrarafkomu. Jafnframt hafa ytri aðstæður svo sem gengi Evru gagnvart Bandaríkjadal og þróun olíuverðs hjálpað til. Miðað við sömu forsendur og í árshlutareikningi 30. júní sl. hafa helstu lykilstærðir , svo sem lausafjár- og eiginfjárhlutföll, lagast talsvert. Unnið hefur verið að endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins í nánu samstarfi við viðskiptabanka um alllangt skeið. Reiknað er með að mikilvægum þáttum þeirrar vinnu ljúki í nóvember. Vegna þessa hefur gerð árshlutareiknings dregist og er birtingu hans frestað til viku 49."
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira