Bolli í Sautján með í kaupum á Árvakri 8. desember 2009 06:00 Salan á Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, í febrúar var með fyrstu stóru fyrirtækjasölum íslenskra banka eftir hrunið í fyrra. Tap af rekstri Árvakurs fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 557 milljónum króna á síðasta ári. Samtals nam tapið tæplega 2,9 milljörðum króna. Tap á hverja krónu hlutafjár nam 8,5 krónum.réttablaðið/GVA
Athafnamaðurinn Ásgeir Bolli Kristinsson, oft kenndur við verslunina Sautján, hefur bæst í eigendahóp Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Að sögn Óskars Magnússonar, útgáfustjóra Árvakurs og stjórnarformanns, má segja að Bolli komi inn í eigendahópinn í stað Gísla Baldurs Garðarssonar lögmanns. Óskar Magnússon, sem fór fyrir kaupum hlutafélagsins Þórsmerkur á Árvakri á fyrri hluta þessa árs, kveðst ekki í stöðu til að gefa nákvæmlega upp eigendaskiptingu útgáfufélagsins. „Við höfum ekki gefið hana upp. Þetta er inni í Þórsmörk og kannski ekki allt saman alveg frágengið,“ segir hann. Stærstu hluthafarnir séu hins vegar hann sjálfur, Samherji og Guðbjörg Matthíasdóttir í Ísfélagi Vestmannaeyja. Saman séu þau með rúman helmingshlut. Aðrir hluthafar sem orðaðir hafa verið við útgáfufélag Morgunblaðsins eru Páll H. Pálsson, forstjóri útgerðarfélagsins Vísis í Grindavík, Gunnar B. Dungal, fyrrum eigandi Pennans, og Þorgeir Baldursson, forstjóri Kvosar, eignarhaldsfélags prentsmiðjunnar Odda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þurfa eigendur Árvakurs á fyrsta fjórðungi næsta árs að hefja greiðslur af um 2,4 milljarða króna láni frá Íslandsbanka sem þeim var veitt í tengslum við kaupin á útgáfufélaginu snemma á þessu ári. Við kaupin lögðu nýju hluthafarnir jafnframt um 500 milljónir króna í reksturinn. „Við vinnum hér eftir þeim áætlunum sem við gerðum um kaupin og ég er bjartsýnn á að þær gangi eftir,“ segir Óskar, en kveðst um leið ekki vilja tjá sig nánar um reksturinn eða fjármögnun hans. Því sé þó ekki að neita að fjölmiðlarekstur og ekki síður rekstur dagblaða sé þungur um þessar mundir. Heildarskuldir Árvakurs námu samkvæmt ársreikningi tæpum 5,9 milljörðum króna um síðustu áramót og eiginfjárstaða var neikvæð um rúma tvo milljarða króna. Tap ársins 2008 nam tæpum 2,9 milljörðum króna. Við söluna á útgáfufélaginu til Þórsmerkur töpuðu fyrri hluthafar öllum eignarhlut sínum, en afskrifaðir voru um 2,9 milljarðar króna. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira