Fengu tugmilljarða lán frá Kaupþingi 22. janúar 2009 19:12
Tchenguiz bræður fengu tugi milljarða lánaða frá Kaupþingi hér á landi, í Bretlandi og Lúxemborg mánuðina fyrir bankahrunið. Veðin fyrir lánunum eru að mestum hluta í breskum fasteignafélögum en breskur fasteignamarkaður er gott sem hruninn. Lánin voru veitt á sama tíma og nær ógjörningur var fyrir íslensk fyrirtæki að fá fyrirgreiðslu í íslenskum bönkum. Bræðurnir Vincent og Robert Tchenguiz hafa verið í umfangsmiklum viðskiptum við Kaupþing. Robert á sæti í stjórn Existu en hann eignaðist um 5% hlut í félaginu í skiptum fyrir hlut hans í finnska félaginu Sampo. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings. Bræðurnir hafa aðallega fjárfest í fasteignum, auk þess sem Robert hefur átt hlut í kráarkeðjunni Mitchells &Butler og Sainsbury . Fréttir af tapi þeirra bræðra í fjármálakreppunni hafa verið plássfrekar í erlendum blöðum að undanförnu og fóru reyndar að berast snemma á síðasta ári. Heimildir fréttastofu herma að félög tengd þeim bræðrum hafi fengið yfir tugi milljarða að láni frá Kaupþingi hér á landi, Singer & Friedlander í Bretlandi og Kaupþingi í Lúxemborg frá síðasta sumri og fram að bankahruni. Síðasta lánið var veitt í byrjun október, nokkrum dögum fyrir bankahrun. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru verið að yfirfara veðin fyrir þessum lánum en þau eru að mestum hluta í breskum fasteignafélögum. Veðin hafa rýrnað umtalsvert í verði á síðustu mánuðum en breskur fasteignamarkaður er svo til hruninn. Lánin voru veitt á sama tíma og íslensk fyrirtæki fengu litla sem enga fyrirgreiðslu í íslenskum bönkum og lánsfjármarkaðir voru að lokast. Svo virðist sem þeir bræður hafi haft greiðari aðgang en aðrir að lánsfé innan bankans og eru í dag meðal stærstu skuldurum Kaupþings. Heimildir fréttastofu herma einnig að hluti þessara lána séu í skýrslu Price Waterhouse Coopers sem nú liggur inni hjá Fjármálaeftirlitinu. Þá hafði Efnahagsbrotadeild Ríkisskattstjóra einnig borist ábending um málið sem var send áfram til Fjármálaeftirlitsins. Heimildir fréttastofu herma einnig að verið sé að skoða hvort að þeir Tchenguiz bræður séu tengdir öðrum félögum sem einnig fengu mikla fyrirgreiðslu hjá Kaupþingi.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira