Viðskipti innlent

Litlar breytingar á fasteignamarkaðinum

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 11. desember til og með 17. desember 2009 var 45. Þar af var 31 samningur um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var 4.603 milljónir króna og meðalupphæð á samning 102,3 milljónir króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Fasteignaskrár ríkisins. Vikan er svipuð og undanfarið hvað varðar fjölda samninga og upphæðir.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 56 milljónir króna og meðalupphæð á samning 9,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 89 milljón króna og meðalupphæð á samning 17,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Árborgarsvæðinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×