Yfir helmingur fyrirtækja skilaði ekki ársreikningi 6. nóvember 2009 12:19
Yfir helmingur fyrirtækja landsins, eða 52%, skiluðu ekki ársreikningi sínum til ársreikningaskrár fyrir eindaga sem var fyrir tveimur mánuðum síðan. Viðskiptaráð Íslands hvetur fyrirtæki til að standa sig betur en þetta því reikningarnir eru lykilatriði í að fá fyrirgreiðslu hjá alþjóðlegum greiðslutryggingarfélögum. Í umfjöllun um málið á vefsíðu Viðskiptaráðs segir að eins og kunnugt er þá hefur samstarfshópur á vegum Viðskiptaráðs, CreditInfo, fjármálastofnana og ráðuneyta unnið að því að koma á eðlilegri fyrirgreiðslu alþjóðlegra greiðslutryggingarfélaga gagnvart íslenskum fyrirtækjum. Tilgangur vinnunnar er sem fyrr að upplýsa forsvarsmenn félaganna um stöðu íslenskra fyrirtækja og efnahagsmála með það að markmiði að ábyrgðir verði veittar á greiðslur frá íslenskum fyrirtækjum. Eins og kom fram í frétt ráðsins frá í sumar hefur þessi vinna skilað nokkrum árangri, en félagið Coface ákvað að opna fyrir greiðslufallstryggingar til íslenskra félaga. Hinsvegar hafa stærstu tryggingarfélögin, Atradius og Euler Hermes, enn ekki opnað aftur á tryggingar gagnvart Íslandi og því en nokkurt verk að vinna. Nánari verður gerð grein fyrir framgangi málsins á næstu vikum. Eins og Viðskiptaráð hefur áður bent á er frumforsenda þess að tryggingarfélög gangist í ábyrgð fyrir greiðslur frá íslenskum fyrirtækjum sú að fyrir liggi upplýsingar um rekstur þeirra. Þetta verður best gert með tímanlegum skilum ársreikninga til ársreikningaskrár. Réttum tveimur mánuðum eftir eindaga skila á ársreikningum hafa 48% íslenskra fyrirtækja skilað inn ársreikningi fyrir árið 2008. Þó hér sé um all nokkra framför að ræða frá því fyrir ári síðan, er ljóst að betur má ef duga skal og hvetur Viðskiptaráð Íslensk fyrirtæki til að virða eindaga skila eftir kostum. Slík upplýsingaskil eru forsenda þess að erlend greiðslutryggingarfélög fáist aftur til að tryggja greiðslur íslenskra fyrirtækja.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira