Krafðir um samtals 3 milljarða króna vegna söluréttarsamninga Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 13. nóvember 2009 18:30
Hreiðar Már, Sigurður Einarsson, Bjarni Ármannsson og Lárus Welding eru meðal tuttugu og átta stjórnenda Kaupþings og Glitnis sem skattayfirvöld krefja um þrjá milljarða króna í tengslum við endurálagningu Ríkisskattstjóra vegna söluréttarsamninga. Söluréttarsamningar virkuðu þannig að starfsmönnum gafst færi á að kaupa hlutabréf með söluréttartryggingu fyrirtækisins. Ef bréfin hækkuðu í verði gátu þeir valið að eiga bréfin eða selja þau en ef þau lækkuðu gátu þeir gengið frá samningnum sér að kostnaðarlausu. Mörg fyrirtæki sem skráð voru á markað gerðu slíka samninga, t.a.m. Glitnir, Kaupþing, Nýherji og Marel. Stjórnendurnir greiddu 10% fjármagnstekjuskatt þegar bréfin voru seld en greiddu ekkert vegna söluréttarins. Þessu vill Ríkisskattstjóri breyta þannig að stjórnendurnir greiði 35% skatt í stað 10. Þá getur einnig bæst við 25% álag. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Ríkisskattstjóri nú sent bréf til um 10 stjórnenda Kaupþings og Glitnis um endurákvörðun opinberra gjalda vegna samninganna. Alls munu tuttugu og átta stjórnendur Glitnis og Kaupþings fá slíkt bréf. Restin af bréfunum verða send út á næstu vikum. Meðal þeirra eru fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson og fyrrverandi forstjórar Glitnis þeir Bjarni Ármansson og Lárus Welding. Í heildina nemur endurálagning um þremur milljörðum króna en hæstu gjöldin nema um 200 milljónum. Enn er unnið að því að greina söluréttarsamninga í öðrum fyrirtækjum svo það má búast við að stjórnendur annarra fyrirtækja muni innan tíðar fá bréf frá Ríkisskattstjóra inn um lúguna.
Mest lesið Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira