Hagar: Hagsmunir allra best tryggðir með lausn sem unnið er að 13. nóvember 2009 14:38
Í yfirlýsingu sem borist hefur fá Finni Árnasyni forstjóra Haga segir að hagsmunir félagsins, hagsmunir viðskiptavina, hagsmunir 2.500 starfsmanna og hagsmunir lánveitenda eru sameiginlegir og best tryggðir með þeirri lausn, sem nú er unnið að.Yfirlýsingin í heild hljóðar svo: „Vegna umfjöllunar um málefni Haga þar sem ítrekað hefur verið farið rangt með staðreyndir er rétt að eftirfarandi komi fram:Engar skuldir hafa verið afskrifaðar á Haga og ekki stendur til að afskrifa neinar skuldir á Haga. Hagar eru þvert á móti eina fyrirtæki landsins sem hefur á s.l. 18 mánuðum greitt upp að fullu með vöxtum skráðan skuldabréfaflokk, sem var meginhluti skulda félagsins. Hagar eru nú vel fjármagnað félag til langs tíma.Nú er unnið að lausn á skuldum eignarhaldsfélagsins 1998, eiganda Haga. Þar er meginmarkmiðið að ekki komi til neinna afskrifta skulda, m.a. með því að erlendir fjárfestar leggi fram verulega fjármuni til félagsins í formi nýs hlutafjár. Umfjöllun eða fullyrðingar um annað eru einfaldlega rangar.Líta verður á umfangsmikla umfjöllun Morgunblaðsins undanfarnar vikur, sem einstaka í sögu blaðamennsku. Sú umfjöllun verður ekki skilin öðruvísi en sem aðför að Högum og því starfsfólki sem þar starfar. Megininntakið í málflutningi blaðsins er að nauðsynlegt sé að Bónus starfi í framtíðinni án Jóhannesar í Bónus. Blaðið heldur því fram að hagsmunum félagsins sé best borgið með brotthvarfi stofnandans og frumkvöðulsins Jóhannesar í Bónus.Þessu er ég, sem forstjóri Haga með öllu ósammála og deili ég þar skoðunum með stjórnendum og starfsfólki Haga.Enginn hefur unnið betra starf í þágu landsmanna við að tryggja lágt vöruverð á Íslandi en Jóhannes í Bónus. Hann hefur barist fyrir lágu vöruverði og ekki síður að sama verð sé boðið í verslunum hans um allt land. Hann hefur verið frumkvöðull í hagræðingu, sem hefur skilað sér í lægra vöruverði til íslenskra heimila.Jóhannes vinnur nú að lausn á málefnum eignarhaldsfélagsins með það að markmiði að ekki komi til neinna afskrifta skulda. Með því verður tryggt að Bónus verði áfram í forystu með að tryggja lágt vöruverð um land allt. Það er staðföst skoðun stjórnenda og starfsfólks að framangreindum markmiðum verði ekki náð án Jóhannesar. Hagsmunir félagsins, hagsmunir viðskiptavina, hagsmunir 2.500 starfsmanna og hagsmunir lánveitenda eru sameiginlegir og best tryggðir með þeirri lausn, sem nú er unnið að.Með kveðju,Finnur Árnason"
Mest lesið Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira