Hagnaður Reykjanesbæjar orðinn yfir 8 milljarðar í ár 27. nóvember 2009 11:50
Samkvæmt í 10 mánaða árshlutauppgjöri endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte á fjárhagsstöðu bæjarsjóðs Reykjanesbæjar 2009 sem lagt var fram í bæjarráði í gær kemur fram rúmlega 8 milljarða kr. hagnaður.Í tilkynningu segir að miðað við uppgjör Deloitte, sem gildir tímabilið 1.janúar til 31. október, hækkar eigið fé bæjarsjóðs Reykjanesbæjar úr 2,4 milljörðum kr. árið 2008 í 11,0 milljarða kr. Eiginfjárhlutfall þessa tímabils fer úr 18,44% árið 2008 í 43,09%.Þessi staða í rekstri og efnahag Reykjanesbæjar er vegna viðskipta með hluti í HS hf. en bærinn hefur selt 34% eignarhlut sinn í HS orku hf. Reykjanesbær hefur keypt meirihluta í HS veitum og á nú þar 66,7%, Að auki keypti Reykjanesbær land og auðlindaréttindi undir virkjunum á Reykjanesi.Sveitarfélög sem áttu hluti í HS, seldu stærstu hluti sína 2008 og þannig færðist söluhagnaður þeirra í ársreikning 2008. Í tilviki Reykjanesbæjar tók hann á sig yfir 4 milljarða kr. reiknað tap af HS hf. árið 2008 en fær nú söluhagnað á árinu 2009.Að teknu tilliti til reiknaðra liða er gert ráð fyrir um 7 milljarða hagnaði í árslok 2009, að eignir bæjarsjóðs nemi um 23 milljörðum kr. og að Reykjanesbær haldi um 40% eiginfjárhlutfalli.„Vandi okkar hefur verið lágar skatttekjur sem eiga að standa undir rekstri. Það hefur vantað um 900 milljónir kr. í skatttekjur árlega til að við náum meðalskatttekjum sveitarfélaga á Íslandi. Skatttekjur koma af störfum. Með nýjum atvinnutækifærum á næsta ári er loks að rofa til í atvinnutekjum og því er staða okkar að verða mjög sterk til framtíðar,"segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar í tilkynningunni.
Mest lesið Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Viðskipti innlent Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Sjá meira