Viðskipti innlent

Straumur niður um sjö prósent í byrjun dags

Gengi bréfa í Straumi féll mest í byrjun dags.
Gengi bréfa í Straumi féll mest í byrjun dags. Mynd/Rósa

Gengi hlutabréfa í Straumi féll um sjö prósent í byrjun dags í Kauphöllinni. Á eftir fylgdi Century Aluminum, sem fór niður um 5,91 prósent. Þá hefur gengi bréfa í Bakkavör farið niður um 2,53 prósent, Marel Food Systems um 1,18 prósent og Össurar um 0,41 prósent.

Gengi bréfa í Eimskipafélaginu hefur hækkað um 0,77 prósent á sama tíma.

Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 1,18 prósent og stendur hún í 324 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×