Viðskipti innlent

Skeljungur og tengd félög í opið söluferli

Mynd/Pjetur

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 49% hlut í Skeljungi hf. og tengdum félögum. Félögin sem umræðir eru S fasteignir ehf., Ö fasteignir og Birgðastöðin Miðsandur ehf. en öll eru þau í dag í eigu Miðengis ehf., dótturfélags Íslandsbanka.

Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 100 milljónir króna í árslok 2008. Íslandsbankdi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×