Verði krafan samþykkt rennur hún til velferðamála 19. nóvember 2009 11:26
Fyrrum framkvæmdarstjóri Landsbankans, Yngvi Örn Kristinsson, hefur gefið út yfirlýsingu vegna launakröfu sem hann og fleiri fyrrum starfsmenn Landsbankans hafa gert í þrotabú Landsbankans. Hann gerir 229 milljón króna kröfu í þrotabúið. Í yfirlýsingunni segir hann að það sé ljóst að ríkissjóðir Bretlands og Hollands muni fá um helming af eignum bankans. „Falli ég og aðrir fyrrverandi starfsmenn frá okkar kröfum mun því helmingur þeirra renna til Breta og Hollendinga. Ég hef ekki áhuga á að styrkja þær þjóðir frekar en orðið er," segir í yfirlýsingunni. Þá segir í lokin að Yngvar hyggist gefa kröfu sína til velferðamála verði hún samþykkt. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni: Yfirlýsing frá Yngva Erni Kristinssyni Mikil umræða hefur spunnist um kröfur mínar og annarra fyrrverandi starfsmanna Landsbankans í þrotabú Landsbanka Íslands hf. Um er að ræða lögvarðar kröfur samkvæmt ráðningar-samningnum og eru þær aðallega til komnar vegna kauprétta sem voru í vanskilum af hálfu bankans frá árinu 2007. Óvíst er hvort þær verða samþykktar. Ljóst er að ríkissjóðir Bretalands og Hollands munu fá um helming af eignum þrotabús Landsbankans. Falli ég og aðrir fyrrverandi starfsmenn frá okkar kröfum mun því helmingur þeirra renna til Breta og Hollendinga. Ég hef ekki áhuga á að styrkja þær þjóðir frekar en orðið er. Þá er ljóst að um helmingur af kröfum starfsmanna, verði þær samþykktar, munu renna til ríkissjóðs vegna tekjuskatta og enn meira ef tekið er tillit til óbeinna skatta. Ísland og íslenska ríkið mun því ekki skaðast af kröfum mínum í þrotabúið. Sjálfur hef ég ákveðið að komi til þess að kröfur mínar verði samþykktar af þrotabúinu renni þær, að frádregnum sköttum, til velferðarmála.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira