Teitur: Við vissum að þetta yrði brjálaður nóvember Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2009 21:50 Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar. Mynd/Daníel
Teitur Örlygsson var ánægður með sína leikmenn þrátt fyrir tíu stiga tap í Grindavík í kvöld. Stjörnuliðið sýndi mikla seiglu í leiknum og hélt sér inn í leiknum allan leikinn en varð að sætta sig við tap í lokin. „Þetta var skrefið í rétta áttina hjá okkur og ég er virkilega ánægður með þennan leik því við erum bara 50-60 prósent. Það eru 6 af 7 mönnum hjá okkur meiddir og þeir eru að spila á 50 prósent hraða. Það er samt engin afsökun því þeir spila leikina og ég er virkilega stoltur af þeim," sagði Teitur í leikslok. Stjarnan er nú í 4. sæti deildarinnar og féll niður um tvö sæti eftir leiki kvöldsins: „Við erum hæstánægðir með stöðuna í deildinni eins og hún er í dag að við séum með fimm sigra og tvö töp. Við ætlum að reyna að ná fleiri sigrum fyrir jól. Menn eru á batavegi og þeir verða bara betri," segir Teitur. Teitur segist vera í nánu sambandi við sjúkraþjálfarann þessa daganna. „Menn eru ekkert að æfa en við förum í gegnum þetta. Ég er hrikalega stoltur af strákunum eins og þeir spiluðu í dag og þá sérstaklega af Fannari. Ég veit ekki hvað hann tók mörg fráköst á annarri löppinni sem er bara magnað," sagði Teitur en Fannar tók 15 fráköst í leiknum. „Við eigum Njarðvík í næsta leik og við vissum að þetta yrði brjálaður nóvember hjá okkur og þess vegna var mikilvægt að taka þessa fyrstu leiki í mótinu. Það hjálpaði okkur," sagði Teitur.
Dominos-deild karla Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Handbolti Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira