Fasteignafélag N1 skuldum hlaðið 19. nóvember 2009 04:00 Úr verslun n1. Félag sem heldur utan um fasteignir olíufélagsins N1 skuldar milljarða í erlendri mynt.
Umtak, félag sem heldur utan um fasteignir olíufélagsins N1, skuldaði 13,5 milljarða króna í lok árs 2007. Í lok ársins átti félagið eignir á móti skuldum, eða fyrir tæpa 14,4 milljarða króna. Skuldirnar eru að mestu í evrum, svissneskum frönkum og japönskum jenum og standa eftir hrun krónunnar nú í tæpum tuttugu milljörðum króna. N1 stofnaði Umtak í ársbyrjun 2007. Félagið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir síðasta ár. Sævar Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri Umtaks, segir hafa verið skrifað undir ársreikning um mitt ár og hafi honum verið skilað til ársreikningaskrár. Þá sé það því miður algengt að lán fyrirtækja í erlendri mynt hafi hækkað mikið við fall krónunnar. Hann segir öll lán í skilum og enga gjalddagar í nánustu framtíð. Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudag að framkvæmdastjórar N1, sem eru með afkomutengd laun, hafi síðustu daga verið að innleysa bónusa sína. Þeir nemi í einhverjum tilvikum tugum milljóna króna. Ástæðan mun ótti þeirra við að lánardrottnar félagsins kunni að taka það yfir. N1 er með 1,5 milljarða króna lán á gjalddaga fyrir mitt næsta ár og sjö milljarða á gjalddaga árið eftir. - jab
Mest lesið Skamma og banna Play að blekkja neytendur Neytendur Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira