Kaupþing eignast hlut í Lagernum Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. nóvember 2009 18:57
Lagerinn hefur undanfarið átt í samningaviðræðum við Nýja Kaupþing banka um endurskipulagningu á rekstri með það fyrir augum að létta á íþyngjandi skuldabyrði félagsins. Bankinn hefur nú náð samkomulagi við Jákup Jacobsen, stærsta hluthafa Lagersins, um breytingu á skuldum í hlutafé. Samkvæmt lánabók Kaupþings frá 25. september 2008 sem var birt á vefnum Wikileaks síðsumars námu skuldir Lagersins og tengdra félaga við Kaupþing 318 milljónum evra, eða 58 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Jákup Jacobsen, stofnandi og helsti eigandi Lagersins, sagði í samtali við fréttastofu í dag að samkomulag sem fyrirtækið hefði gert við Nýja Kaupþing fæli ekki í sér neinar afskriftir á lánum bankans til Lagersins eða tengdra fyrirtækja. Lagerinn er í eigu Jakúps, sem á 82 prósent hlut og viðskiptafélaga hans, Jákups Purkhus, en hann á rúmlega 17 prósent hlut ásamt eiginkonu sinni. Jákup vildi ekki gefa upp hversu stóran hlut Nýja Kaupþing væri að eignast í Lagernum, en samkvæmt heimildum fréttastofu erum verulegan hlut að ræða. Auk Rúmfatalagersins á fyrirtækið Ilvu-verslanirnar, og verslanir undir merkjum Jysk í bæði Kanada og Eystrasaltslöndunum. Fasteignafélagið SMI, dótturfélag Lagersins, á m.a 20 hæða turninn við Smáratorg í Kópavogi, sem er hæsta hús landsins, verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri, Korputorg og ýmsar fasteignir í Reykjavík.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira