Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti skuldabréf á einstakling 6. nóvember 2009 15:52
Fjárfestingasjóðurinn Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti skuldabréf á einstakling árið 2005 upp á 400 milljónir kr. Slíkt er brot á fjárfestingastefnu sjóðsins og hefur málinu verið vísað til Fjármálaeftirlitsins og Rannsóknarnefndar Alþingis. Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að sjóðurinn hafi verið í slitameðferð frá því honum var lokað þann 6. október 2008. Hlutdeildarskírteinishöfum hefur verið greitt út úr sjóðnum eftir því sem eignum hefur verið komið í verð. Sjóðurinn hafði verið starfræktur með nokkrum breytingum frá árinu 1990 undir merkjum Landsbréfa og síðar Landsvaka hf, dótturfélags Landsbanka Íslands hf. og nú dótturfélags NBI hf. Landsbankans. Samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins bar honum að fjárfesta í skuldbréfum og víxlum fyrirtækja, fjármálastofnana, ríkis og sveitarfélaga. Í ljós hefur komið að árið 2005 fjárfesti sjóðurinn engu að síður í skuldabréfi á einstakling. Andvirði þess nam 400 milljónum króna sem þá var hverfandi hluti af heildarverðmæti bréfa í sjóðnum. Greitt var af skuldabréfinu samkvæmt samningi framan af, og síðar var hluta af eftirstöðvunum skuldajafnað. Í dag nema eftirstöðvar bréfsins hins vegar um 190 milljónum króna. Skömmu eftir bankahrunið tóku nýir stjórnendur við rekstri Landsvaka auk þess sem skipt var um stjórn félagsins. Það er mat nýrra stjórnenda að kaup á fyrrgreindu skuldabréfi feli í sér brot á fjárfestingarstefnu sjóðsins. Þegar ljóst varð að skuldari bréfsins myndi ekki standa skil á eftirstöðvum eftir lokun sjóðsins, var það niðurstaða Landsvaka, m.a. byggð á óháðri lögfræðiúttekt, að Landsvaki yrði að bera tjónið sem af brotinu leiðir. Landsvaki mun því bæta hlutdeildarskírteinishöfum sjóðsins fyrrgreint tjón og harmar jafnframt atvikið og þau óþægindi sem það hefur valdið. Bankaráð NBI hf. Landsbankans, mun tryggja áframhaldandi rekstrarhæfi Landsvaka þannig að félagið mæti þeim eiginfjárkröfum sem gilda um reksturinn. Fjármálaeftirlitinu hefur verið gerð grein fyrir málinu og Rannsóknarnefnd Alþingis fengið afhent gögn er það varða.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira