Metaðsókn á ráðstefnu um viðskipti á netinu 2. desember 2009 14:14
Hátt í 500 manns sóttu ráðstefnu Útflutningsráðs Íslands 1. desember þar sem fjallað var um viðskipti á netinu og er það metaðsókn á viðburð af þessu tagi á vegum ráðsins. Ráðstefnan, sem bar yfirskriftina Vefurinn skapar verðmæti - Aukin tækifæri til útflutnings, laðaði að sér fólk úr ýmsum greinum atvinnulífsins og ljóst að margir eru áhugasamir um nýjar leiðir í viðskiptum.Í tilkynningu um ráðstefnuna kemur fram að Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, sagði í upphafi fundar að nú væri rétti tíminn til að skapa gjaldeyri og því væri ekki úr vegi að efna til þjóðarátaks. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flutti ávarp og vísaði m.a. í eigin reynslu af vefverslun. Hvatti ráðherra viðstadda til að sameinast um að koma íslenskum vörum á framfæri og væri vefurinn m.a. vel til þess fallinn.Fulltrúar eftirtalinna fyrirtækja sögðu frá nýjum tækifærum og árangursríkum leiðum við sölu á netinu; Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°Norður, Sófus Gústavsson, eigandi Nammi.is, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Nathan Richardsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs CCP Games, Ragnar Th. Sigurðsson, eigandi Arctic Images, Friðrik Skúlason, stofnandi Friðriks Skúlasonar ehf., Kristján Gunnar Steinarsson, verkefnastjóri Gogoyoko ehf., Eldar Ástþórsson, markaðsstjóri Gogoyoko ehf. og Kristinn Leifsson, vefmarkaðsstjóri SagaMedica.Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni var Bandaríkjamaðurinn Rob Snell með erindi sitt It's simple to sell online - It's just a question of starting. Rob er aðaleigandi Snell Brothers, ráðgjafafyrirtækis sem sérhæfir sig í sölu á netinu, og er höfundur bókarinnar Yahoo Store! For Dummies. Sagði hann frá víðtækri reynslu sinni af hönnun, þróun og markaðssetningu netverslana sem velta milljónum dollara á ári.Rob hvatti fulltrúa fyrirtækja til að vanda vel til verka og sagði það lykilatriði að selja beint í gegnum netið. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að velja texta og fyrirsagnir á vefi þannig að birtust fljótt þegar leitað væri eftir ákveðnum lykilorðum með hjálp leitarvéla. Aðalatriðið væri að vera sýnilegur og reyna að sjá fyrir hvaða upplýsingar gögnuðust viðskiptavinum best. Hugleiða hvaða spurningar gætu vaknað og hafa svör á reiðum höndum.Ráðstefnugestum gafst tækifæri til að spjalla við fyrirlesara í kaffihléi og í hádeginu að loknum fundi og nýttu það margir til að fræðast frekar um leiðir við sölu á netinu. Viðbrögð fundargesta hafa verið afar góð og margir haft samband við starfsmenn Útflutningsráðs til að lýsa yfir ánægju með viðburðinn.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira