Ríkisendurskoðun gagnrýnir Seðlabankann vegna ástarbréfa 11. desember 2009 14:19 Seðlabanki Íslands.
Ríkisendurskoðandi gagnrýnir lánveitingar Seðlabankans til fjármálafyrirtækja á síðasta ári og telur ýmsum spurningum ósvarað varðandi lánveitingarnar. Þetta kemur fram í endurskoðun embættisins á ríkisreikningum árið 2008. Þar er fjallað um tap Seðlabanka Íslands vegna veðlána hans, eða ástarbréfa eins og það var kallað, til fjármálafyrirtækja á árinu 2008. Í tilkynningu frá ríkisendurskoðun segir: „Fyrir liggur að hinir föllnu bankar öfluðu sér lausafjár með lánum frá minni fjármálafyrirtækjum sem aftur fengu lán frá Seðlabankanum gegn ótryggðum bréfum. Í ágúst 2008 herti bankinn reglur sínar um veðtryggingar og setti þar með skorður við þessari leið bankanna til að útvega sér lausafé. Að mati Ríkisendurskoðunar má spyrja af hverju Seðlabankinn brást ekki fyrr við enda hefði það getað dregið úr því tjóni sem hann og ríkissjóður urðu fyrir vegna bankahrunsins." Í skýrslunni er einnig fjallað um þann mikla viðsnúning sem varð í rekstri ríkisins á síðasta ári miðað við árin á undan sem rekja má til bankahrunsins. Eftir að hafa skilað tekjuafgangi fjögur ár í röð, 2004-2007, varð um 220,5 milljarða króna halli á rekstrinum árið 2008 og hefur hann aldrei verið meiri í sögu lýðveldisins. Heildargjöld ríkisins hækkuðu um 73% í krónum talið frá árinu 2007 en tekjur drógust saman um tæplega 3%. Þá jukust langtímaskuldir ríkisins verulega eða sem nemur 127,5%. Samkvæmt athugun Ríkisendurskoðunar hefur stór hluti stofnana ekki fellt greiðslur fyrir ómælda yfirvinnu að fullu inn í föst laun þrátt fyrir að kjarasamningar frá árinu 2006 mæli fyrir um það. Hjá þessum stofnunum er þó mismunandi hve stór hluti starfsmanna fær sérstaklega greitt fyrir yfirvinnu og fyrir hve margar vinnustundir. Ríkisendurskoðun telur að þetta valdi því að launakerfi ríkisins sé mjög ógagnsætt. Ríkisendurskoðun gerir ekki verulegar athugasemdir við reikningsskil stofnana fyrir árið 2008 en bendir á veikleika í innra eftirliti hjá allmörgum þeirra.Hér má lesa skýrsluna.
Tengdar fréttir Ástarbréf Seðlabankans hafa þegar kostað 400 milljarða Ríkisendurskoðun gagnrýnir mjög harðlega fyrrum bankastjóra Seðlabankans í nýrri skýrslu sinni um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2008. Sökum þess umfangsmikla taps sem ríkissjóður varð fyrir vegna svokallaðara „ástarbréfa" bankans er gerð sérstök grein fyrir því máli í skýrslunni. 11. desember 2009 14:57 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Ástarbréf Seðlabankans hafa þegar kostað 400 milljarða Ríkisendurskoðun gagnrýnir mjög harðlega fyrrum bankastjóra Seðlabankans í nýrri skýrslu sinni um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2008. Sökum þess umfangsmikla taps sem ríkissjóður varð fyrir vegna svokallaðara „ástarbréfa" bankans er gerð sérstök grein fyrir því máli í skýrslunni. 11. desember 2009 14:57