Hagsjá: Spáir því að verðbólgan lækki í 7,6% 13. desember 2009 11:35
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga milli nóvember og desember mælist 0,6%. Gangi spáin eftir lækkar 12 mánaða verðbólga úr 8,6% niður í 7,6%, en vísitalan hækkaði um 1,5% í desember í fyrra. Sú hækkun dettur nú úr tólf mánaða taktinum. Fjallað er um málið í Hagsjá hagfræðideildarinnar. Þar segir að deildin býst við fremur litlum verðhækkunum á mat- og drykkjarvörum en telur líklegt að kaupmenn muni nýta sér aukna neyslu í desember og beita tilboðum til að reyna að laða viðskiptavini til sín. Líklegt má telja að nokkrar áframhaldandi verðhækkanir verði á fötum, skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði. Þessir liðir hafa hækkað um tæplega helming frá fyrri hluta árs 2008 en á sama tíma hefur gengisvísitala íslensku krónunnar hækkað um ríflega 60%. Hreyfingar á öðrum liðum verða minni samkvæmt spánni. „Matar- og drykkjarliðurinn hefur hækkað umtalsvert síðustu mánuði og má rekja hækkanirnar að miklu leyti til breytinga á vörugjöldum og að einhverju leyti vegna veikingar krónunnar þó mjög sé farið að hægja á henni. Við teljum fremur ólíklegt að komi til verðhækkana á matvælum og drykkjarvörum í desember, en líklegt er að neytendur horfi betur nú en oft áður á krónurnar áður en þeim er varið í neyslu og kaupmönnum því sniðinn þrengri stakkur til verðhækkana," segir í Hagsjánni. „Á móti kemur, sér í lagi með hálfvaranlegar neysluvörur eins og fatnað og húsgögn, að kaupmenn gætu haft tilhneigingu til verðhækkana, þar sem innkaupaverð í krónum talið hefur hækkað ríflegar en söluverð frá fyrri hluta árs 2008 og desember verður að öllum líkindum besti sölumánuðurinn næsta misserið. Þá hefur eldsneytisverð lækkað óverulega frá síðustu verðmælingu Hagstofunnar."
Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira