90 milljónir í aðkeypta lögfræðiþjónustu Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 6. desember 2009 18:44
Ráðuneytin hafa keypt þjónustu lögfræðinga út í bæ fyrir tæpar níutíu milljónir króna það sem af er ári - þótt að minnsta kosti á sjöunda tug lögfræðinga séu starfsmenn ráðuneytanna. Alls hafa ráðuneytin keypt ráðgjöf fyrir um hundrað og níutíu milljónir króna á árinu. Sultarólin er nú víða hert og því höldum við áfram að rýna í kostnað ráðuneytanna. Nú er það aðkeypt ráðgjafaþjónusta. En bókhald er flókið á stóru heimili - og ansi margt sem fellur undir þennan lið, þar er kostnaður ráðuneytanna vegna þýðenda, túlka, tölvuþjónustu, jafnvel sálfræðinga, öryggisgæslu og ráðningafyrirtækja. En það kemur líklega engum á óvart - að sú stétt sem ráðuneytin hafa borgað mest fyrir ráðgjöf á árinu er stéttin sem engin kreppa bítur á - lögfræðingar. Minnstur er sérfræði- og ráðgjafakostnaður hjá umhverfisráðuneytinu, þrjár og hálf milljón króna, hann fer síðan hækkandi og er langmestur hjá tveimur ráðuneytum: Utanríkisráðuneytið hefur varið yfir tíu sinnum meira í aðkeypta ráðgjöf heldur en ráðuneyti umhverfismála það sem af er ári, 39,8 milljónum króna - um 70% er kostnaður vegna hrunsins. Það sama gildir um fjármálaráðuneyti - sem hefur keypt ráðgjöf út í bæ fyrir 43 milljónir króna á árinu, tæplega 90% af þeim kostnaði er vegna hrunsins. Samanlagt hafa ráðuneytin varið 189,3 milljónum króna í að kaupa ráðgjöf og sérfræðiþekkingu út í bæ á árinu. Stærsti kostnaðarliðurinn eru lögfræðingar - mismikill eftir ráðuneytum - ekki króna fór í lögfræðinga hjá heilbrigðisráðuneytinu - en langmestur lögfræðikostnaður er hjá ráðuneytum utanríkis og fjármála, vegna hrunsins. Nær 90 milljónir fóru í aðkeypta lögfræðiþjónustu - þótt að minnsta kosta 64 lögfræðingar starfi í ráðuneytunum. Ríkissjóður hyggst verja um 550 milljörðum til samneyslunnar á næsta ári. 180 milljónir króna vega ekki þungt í þeim samanburði, en liðirnir eru margir, og til dæmis var fjórtán sagt upp á Reykjalundi fyrir mánuði - því þeir þurfa að skera niður um 90 milljónir á næsta ári. Enginn efast um þörfina fyrir Barnaspítala Hringsins - hann þarf að líkindum að skera niður um allt að 150 milljónir króna, sem er heldur minna en ráðuneytin hafa varið í aðkeypta þjónustu sérfræðinga á árinu.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira