Neytendastofa sektar Allianz um eina milljón króna 17. desember 2009 13:07
Neytendastofa hefur sektað Allianz um eina milljón kr. Um var að ræða annað brot Allianz á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu við samanburð á ávöxtun viðbótarlífeyrissparnaðar og því taldi Neytendastofa ástæðu til að leggja stjórnvaldssekt á Allianz. Í umfjöllun um málið á vefsíðu Neytendastofu segir að með ákvörðuninni er samanburðarauglýsing Allianz bönnuð og Allianz gert að greiða eina milljón króna í stjórnvaldssekt. Nýi Kaupþing banki, nú Arion banki, kvartaði til Neytendastofu yfir samanburði Allianz á nokkrum lífeyrissparnaðarleiðum. Nýi Kaupþing taldi samanburðinn villandi og þá ávöxtun sem borin var saman ekki samanburðarhæfa. Í auglýsingunni var borin saman raunávöxtun einstaklinga með viðbótarlífeyrissparnað hjá Allianz, Nýja Kaupþingi og nokkrum öðrum sjóðum. Í auglýsingunni var búið að umreikna nafnávöxtun sparnaðarins yfir í raunávöxtun. Við þann umreikning ætti m.a. að taka tillit til verðbólgu og gengisbreytinga, þegar sparnaður er í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum. Í ávöxtunartölum fyrir sparnað hjá Allianz hafði ekki verið tekið tillit til gengisbreytinga, þar sem hjá Allianz er sparað í evrum. Þá hafði verið tekið tillit til verðbólgu í Þýskalandi, þar sem höfuðstöðvar Allianz eru, en ekki verðbólgu á Íslandi. Í auglýsingunni var því raunávöxtun einstaklings með viðbótarlífeyrissparnað tekinn út á Íslandi borin saman við raunávöxtun einstaklings með viðbótarlífeyrissparnað tekinn út í Þýskalandi. Neytendastofa taldi samanburðinn ekki í samræmi við lög og féllst því á kröfur Nýja Kaupþings.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira