Fyrrum eigendur Atorku fúlir út í Finn Kaupþingsstjóra 18. nóvember 2009 16:14 Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings
Fyrrum stjórnendur og eigendur Atorku Group hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir telja sig ekki hafa setið við sama borð og til að mynda núverandi eigendur Haga í samningaviðræðum við bankann. Í yfirlýsingunni kemur fram að þau orð Finns Sveinbjörnssonar í fjölmiðlum, að það sé í samræmi við verklagsreglur bankans að núverandi eigendur 1998, móðurfélags Haga, fái fyrst tækifæri til að koma með nýtt fé í reksturinn áður en aðrar leiðir séu skoðaðar, séu í hróplegu ósamræmi við þá meðferð sem Atorkumenn fengu í sínum samningaviðræðum við bankann. Yfirlýsingin í heild sinni: „Stjórnendur Atorku Group hf. furða sig á ummælum Finns Sveinbjörnssonar, bankastjóra Nýja Kaupþings banka í tengslum við umfjöllun um 1998 ehf, móðurfélag Haga, þar sem fram kemur að Finnur telji eðlilegt að eigendum Haga gefist kostur á að koma með nýtt fé inn í rekstur félagins. Vitnar hann m.a. til verklagsreglna bankans um meðferð slíkra mála. Ummæli bankastjórans, Finns Sveinbjörnssonar, um að eðlilegt sé að veita eigendum Haga svigrúm til að koma með nýtt fé og ekki sé útilokað að felldar verði niður skuldir í því ferli, vekja óneitanlega spurningar um hvort jafnt sé gefið í viðskiptum þeirra eignarhalds- og fjárfestingafélaga sem átt hafa í viðskiptum við Kaupþing. Hluthöfum Atorku Group hf. stóð þess konar þolgæði ekki til boða af hálfu Kaupþings þegar fyrirtækið átti í viðræðum við Kaupþing og fleiri kröfuhafa, fyrr á þessu ári. Þreifingum stjórnenda fyrir hönd hluthafa um að koma með nýtt fé inn í reksturinn var hafnað af hálfu bankans, jafnvel þó ekki væri gert ráð fyrir neinum niðurfellingum eða afskriftum á skuldum félagsins. Hagur um 4600 hluthafa Atorku Group hf. var því fyrir borð borinn. Margir þeirra eru svokallaðir "smærri hluthafar". Komið hefur á daginn að spár stjórnenda Atorku, um fyrirsjáanlegan bata í rekstri þeirra fyrirtækja sem mynda eignasafn félagsins, hafa í nær öllum atriðum ræst. Hið hrópandi ósamræmi á milli orða bankastjórans og framkomu bankans í samskiptum við Atorku er óásættanlegt. Kaupþing leiddi það ferli sem endurskipulagning Atorku fór í á fyrri hluta þessa árs. Hinar títtnefndu „verklagsreglur" virðast því frekar nýtilkomnar, ef þær innihalda slíkar áherslur í meðferð skuldara sem bankastjórinn vísar til í viðtölum við fjölmiðla. Kröfur allra sem tjáð sig hafa um þessi mál, hvort heldur stjórnmálamanna eða almennings hafa gengið út á að allir skuli sitja við sama borð. Því vekur það óneitanlega athygli þegar bankastjóri Kaupþings virðist mismuna aðilum í viðskiptum við bankann."
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira