Fiskmjölverksmiðja HB Granda í gang eftir langt hlé 18. nóvember 2009 12:19
Í morgun hófst vinna í fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi að nýju eftir langt hlé er farið var að vinna úr afla sem Faxi RE kom með til Akraness um miðnætti sl. Afli skipsins er um 1.400 til 1.500 tonn af síld sem veiddist í Breiðafirði. Von er á meiri síldarafla til Akraness á næstunni..Greint er frá þessu á vefsíðu HB Granda. ,,Hér hefur vinnsla legið niðri frá því að verið var að bræða kolmunna sl. vor," sagði Almar Sigurjónsson, rekstrarstjóri fiskmjölsverksmiðja HB Granda, er rætt var við hann í morgun. Þá var verið að gangsetja verksmiðjuna.Að sögn Almars er afkastageta verksmiðjunnar á Akranesi um 900 til 1.000 tonn af hráefni á sólarhring en hann sagðist reikna með að vinnslan færi rólega af stað og verksmiðjan yrði væntanlega ekki keyrð á nema hálfum afköstum til að byrja með. Um 10 til 11 manns munu vinna við framleiðsluna og unnið verður á tvískiptum vöktum.Líkt og áður hefur verið greint frá hér á heimasíðunni er hlutur skipa HB Granda í útgefnum síldarkvóta um 4.500 tonn og sá kvóti dugar því ekki nema fyrir eina veiðiferð hjá hverju uppsjávarskipa félagsins. Vonir eru hins vegar bundnar við að hægt verði að auka við síldarkvótann en það gerist ekki nema að undangengnum rannsóknum á stofnstærð og ástandi stofnsins.Lundey NS er nú við síldarrannsóknir í Kolluál, sem skipulagðar eru af Hafrannsóknastofnun, og að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarveiðisviðs HB Granda, verður skipið við þær rannsóknir í rúma tvo sólarhringa. Að því búnu tekur Faxi RE við í jafnlangan tíma. Þriðja uppsjávarveiðiskip félagsins, Ingunn AK, er nú við síldveiðar í Breiðafirði.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira