Dreginn í svaðið sem fjárglæframaður 19. janúar 2009 18:55
Ég hef verið dreginn inn í svaðið sem fjárglæframaður segir Ólafur Ólafsson en lán fyrir kaupum hins konungsborna Al-Thani frá Katar á tuttugu og fimm milljarða króna hlut í Kaupþingi fór í gegnum félag í eigu Ólafs á Jómfrúareyjunum. Íslensku bankarnir voru rændir innan frá, segir formaður félags fjárfesta. Í yfirlýsingu Sigurðs Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, kemur fram að bankinn lánaði félögum í eigu Sheik Al-Thani og aðila tengdum honum samtals 25,6 milljarða við kaupin á 5% hlut í Kaupþingi. Sheikinn var í sjálfsskuldarábyrgðun fyrir helmingi fjárfestingarinnar en afgangurinn var tryggður með veði í bréfunum sjálfum. Lánið fór í gegnum tvö félög á bresku Jómfrúareyjunum. Ólafur Ólafsson, kenndur við Samskip, er eigandi annars þess félags. Ólafur segist ekki hafa lagt neitt fé inn í viðskiptin. Hann hafi ekki orðið fyrir fjárhagslegu tjóni. Persónulegt tjón hafi hinsvegar verið mikið þar sem hann hafi verið dreginn í svaðið sem fjárglæframaður. Ólafur segist hafa upplýsingar um það að Al Thani fjölskyldan hafi 8. október sl. greitt 12,5 milljarða króna. Eftir það hafi gjaldeyrismarkaðir lokast og því hafi hann haft milligöngu um að greiða eftirstöðvarnar, 402 milljónir, fyrir fjölskylduna. Í yfirlýsingu Sigurðar kemur fram að hlutirnir sem Sheikinn keypti hafi verið hlutir sem þúsundir íslenskra fjárfesta höfðu selt bankanum síðustu vikurnar fyrir kaupin og því hafi engir innherjar verið þeirra á meðal. Vilhjálmur Bjarnason, formaður félags fjárfesta, telur að það séu vísbendingar um annað. Vilhjálmur telur að þær miklu lánveitingar íslensku bankanna til hlutabréfakaupa hafi verið hreinn þjófnaður frá hluthöfum.
Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira