Ekki búið að yfirheyra Ólaf Ólafsson 23. maí 2009 11:43
Húsleit fór fram á heimilum fyrrverandi stjórnenda Kaupþings og í bankanum á vegum sérstaks sakskóknara í tengslum við rannsókn á kaupum eignarhaldsfélags sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Ólafur Ólafsson, sem var um tíma annar stærsti eigandi Kaupþings og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður. Í Morgunblaðinu kemur fram að húsleit hafi einnig farið fram á heimili Ólafs Ólafssonar, skrifstofum Kjalars, sem er eignarhaldsfélag í eigu Ólafs og Samskipum þar sem rannsakendur hafi talið að Ólafur væri með skrifstofu. Það reyndist hinsvegar rangt og gripu rannsakendur í tómt. Þá fór einnig fram húsleit á skrifstofu Q Iceland Finance sem er til húsa hjá lögmannsstofunni Fulltingi, skrifstofu Arion verðbréfavörslu og Consolium, ráðgjafafyrirtækis fyrrum forstjóra Kaupþings, þeirra Ingólfs Helgasonar og Hreiðars Más Sigurðssonar. Tilkynnt var um kaup sjeiksins á 5% hlut í Kaupþingi um tveimur vikum fyrir hrun bankanna. Kaupverð bréfanna var 25,6 milljarðar króna og voru kaupin fjármögnuð í gegnum tvö félög í eigu Ólafs Ólafssonar og Al Thani en félögin eru skráð á bresku Jómfrúareyjunum. Í yfirlýsingu frá Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, segir að til rannsóknar sé grunur um markaðsmisnotkun en viðurlög við því broti varða allt að sex ára fangelsi. Nokkrir hafa fengið réttarstöðu grunaðra í tengslum við málið og er talið líklegt að fleiri fái þá stöðu þegar fram í sækir. Ólafur, sem þekkir sjeikinn persónulega og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira