Kröfum ríkisins í Sparisjóðabankann ekki hafnað 26. nóvember 2009 05:00 Berglind Svavarsdóttir
Kröfur í þrotabú Sparisjóðabankans, áður Icebank, nema samtals 368 milljörðum króna. Þær eru 242 talsins. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Kröfur upp á 81 milljarð hafa verið samþykktar. Langstærstu kröfuna gerir ríkissjóður Íslands, eða rúmlega 200 milljarða. Þá gerir Seðlabanki Íslands kröfu upp á um 24 milljarða. Megnið af þessum upphæðum eru tilkomnar vegna endurhverfra viðskipta Icebank við Seðlabankann. Í fréttum RÚV sagði að slitastjórn hefði þegar hafnað þessum kröfum ríkisins. Berglind Svavarsdóttir, sem situr í slitastjórninni, segir það hins vegar alls ekki rétt. Kröfurnar séu skráðar þannig að þeim hafi verið hafnað að svo stöddu, en það þýði í raun að engin afstaða hafi verið tekin til þeirra enn. Búið er að taka afstöðu til um helmings krafnanna 242. Fjármálaeftirlitið gerir 26 milljóna kröfu í búið vegna starfa skilanefndar bankans. Þeirri kröfu hefur verið hafnað. Berglind segir að þegar neyðarlögin voru sett í fyrrahaust hafi verið kveðið á um það að kostnaður við skilanefndir félli á ríkið. Því hafi svo verið breytt, en sú breyting væri ekki afturvirk. Mat slitastjórnarinnar sé því að kostnaður við störf skilanefndarinnar fram að lagabreytingunni skuli ekki greiðast úr þrotabúinu.- sh
Mest lesið Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Sjá meira