Gera ráð fyrir 25 milljóna hagnaði hjá Kópavogi 18. desember 2009 11:25
Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2010, sem lögð er fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, er gert ráð fyrir 25 milljóna króna rekstrarafgangi. Í tilkynningu um málið til kauphallarinnar segir að áætlunin sé raunhæf og ábyrg. Með henni er frekari vexti á kostnaði hamlað en áfram staðinn vörður um grunnþjónustu og velferðarmál. Áætlunin gerir ráð fyrir auknum framlögum til fræðslusviðs og félagsþjónustu með hliðsjón af ástandi þjóðmála en þó er gerð krafa um hagræðingu á þeim sviðum ekki síður en öðrum. Gjaldskrárbreytingum er stillt í hóf og verða þær innan marka almennra verðlagshækkana. Í sumum tilvikum breytist afgreiðslutími stofnana. Framkvæmdum er haldið í lágmarki en þó þannig að öllu nauðsynlegu viðhaldi verður sinnt. Beitt er auknu aðhaldi á öllum sviðum sem felur í sér minni sveigjanleika í rekstri en nýtur á uppgangstímum. Heildartekjur Kópavogsbæjar árið 2010 eru áætlaðar rúmir 18 milljarðar króna. Þar af er áætlað að skatttekjur nemi rúmum 13 milljörðum króna. Um 60% af skatttekjum fara til reksturs á fræðslusviði, rúm 8% í félagsþjónustu og rúm 10% til æskulýðs- og íþróttamála. Þótt reiknað sé með auknu atvinnuleysi í bænum er talið að útsvarstekjur verði svipaðar milli ára vegna fjölgunar íbúa og samningsbundinna launahækkana.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira