Greining: Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar áfram 27. nóvember 2009 12:36
Greining Íslandsbanka segir að gera megi ráð fyrir því að gjaldþrotum fyrirtækja muni halda áfram að fjölga á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallar er um upplýsingar sem Hagstofan birti í morgun um gjaldþrot fyrirtækja.Í Morgunkorninu segir að það sem af er ári var aukningin á gjaldþrotum fyrirtækja mest á fyrsta þriðjungi ársins en svo tók við tímabil þar sem fjöldi gjaldþrota fyrirtækja var viðlíka eða jafnvel minni en á sama tímabili í fyrra. Í september tók svo gjaldþrota fyrirtækjum að fjölga á ný og voru þau um 65% fleiri en í sama mánuði árið 2008.Má reikna með að mörgum þeirra fyrirtækja sem hafa orðið illa út í efnahagshremmingum síðustu misseri hafi verið haldið uppi af bönkum og koma þannig afleiðingar kreppunnar fram með töf í gjaldþrotatölum.Ljóst er að fjöldi fyrirtækja er í verulegum greiðsluerfiðleikum en skv. upplýsingum frá Seðlabankanum var um fjórðungur fyrirtækja með lán í vanskilum í lok júní síðastliðinn og sökum þess hve stór hluti útlána til fyrirtækja eru kúlulán er líklegt að tölur um vanskil vanmeti vanda fyrirtækja. Gera má ráð fyrir að gjaldþrotum fyrirtækja haldi áfram að fjölga á næstu mánuðum.Ytri aðstæður í hagkerfinu hafa verið afar erfiðar í byggingariðnaði og er sá samdráttur sem orðið hefur í þessari tegund af starfsemi einnig sjáanlegur í atvinnuleysistölum. Alls hafði um fimmtungur þeirra sem voru án atvinnu í október starfað í mannvirkjagerða, eða samtals um 2.360 manns.Áður en bankahrunið skall á í byrjun október fyrir ári var fjöldi atvinnulausra sem áður störfuðu við mannvirkjagerð rétt um 212. Auk þess horfir ekki vel hjá fyrirtækjum í þessari tegund af starfsemi miðað við þær upplýsingar sem komu fram í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika. Þar kom fram að um helmingur útlána til fyrirtækja í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð fellur á gjaldaga á næstu fjórum árum og um þriðjungur á næstu tólf mánuðum en þessi stutti líftími lána gæti bakað þeim enn frekari erfiðleikum þegar fram í sækir.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira