Haldið í sólarhring vegna gruns um efnahagsbrot Sigríður Mogensen skrifar 6. desember 2009 19:02 Frá húsleit. Mynd tengist ekki fréttinni beint.
Dæmi eru um að sérstakur saksóknari handtaki menn á leið til vinnu og færi þá til yfirheyrslu í tengslum við rannsókn mála. Einum var haldið í sólarhring og hann yfirheyrður vegna rannsóknar á lánveitingu Byrs til Exeter. Alls eru hátt í þrjátíu mál komin inn á borð hjá sérstökum saksóknara bankahrunsins. Þar á meðal rannsakar embættið lánveitingu Byrs til félagsins Exeter sem átti sér stað skömmu eftir bankahrunið í fyrra. Menn á vegum Ólafs Haukssonar sérstaks saksóknara leituðu í höfuðstöðvum sparisjóðsins og hjá MP banka í síðasta mánuði í tengslum við þá rannsókn. Heimildir fréttastofu herma að embættið hafi auk þess handtekið þá menn sem grunaðir eru í tengslum við málið sama dag og fært þá til yfirheyrslu. Fréttastofa hefur fengið lýsingar á starfsháttum embættisins þann dag. Menn á vegum embættisins sátu um þá grunuðu í morgunsárið og veittu þeim eftirför á leið til vinnu. Ýmist biðu starfsmenn sérstaks saksóknara eftir því að fólkið skilaði börnum sínum til skóla eða stöðvuðu fólkið þegar það settist upp í bíl sinn um morguninn. Í öllum tilfellum var setið um viðkomandi aðila en starfsmenn sérstaks saksóknara voru í svörtum jeppa sem veitti þeim eftirför. Voru þeir grunuðu síðan færðir til yfirheyrslu, og í einu tilfelli stóð yfirheyrslan yfir í hátt í sólahring. Aðilar málsins sem fréttastofa ræddi við segja atburðarrásina hafa tekið á. Nokkrir hafa réttarstöðu grunaðs í rannsókninni. Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur, sagði í samtali við fréttastofu í dag að eina hliðstæðan við þessar aðferðir sem hún þekkti væri Hafskipsmálið. Þeir sem grunaðir voru í því máli hafi lýst atburðarrásinni á svipaðan hátt. Hún segir um eðlileg vinnubrögð lögreglu að ræða. Hins vegar hafi Íslendingar ekki mikla reynslu af alvarlegum og stórum efnahagsbrotum og því komi það fólki jafnvel í opna skjöldu að sömu aðferðum sé beitt í tengslum við rannsóknir á efnahagsbrotum líkt og í tengslum við rannsóknir annarra mála.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira