Stjórnarformaður OR: Fullyrðingar um milljarða tap rangar 28. nóvember 2009 14:58
Það mat sem lagt er á viðskipti með hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku í árshlutauppgjöri OR er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Fullyrðingar um margra milljarða króna væntanlegt tap OR af viðskiptunum eru rangar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Guðlaugi G. Sverrissyni, stjórnarformanni OR. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í stjórn OR, sagði í gær meirihlutann í Reykjavík hafa farið með rangt mál varðandi virði tilboðs Magma í hlut borgarinnar í HS Orku. Samkvæmt árshlutareikningi OR stefni bókfært tap vegna viðskipta með bréf í HS Orku í 4 milljarða. Guðlaugur segir að í matinu sem hafi verið staðfest af óháðum endurskoðendum sé að finna varúðarniðurfærslu, 962 milljónir króna. „Fullyrðingar um margra milljarða króna væntanlegt tap OR af viðskiptunum eru rangar. Þær eru byggðar á þeim forsendum að um vanefndir samninga verði að ræða og að hlutabréf í HS Orku, sem eru veð OR fyrir greiðslu, séu í raun talsvert minna virði en í viðskiptum OR og Magma, sem var 6,31," segir Guðlaugur. Stjórnarformaðurinn segir að í árshlutauppgjöri OR, sem birt var í dag, séu viðskiptin metin með eðlilegri varúðarfærslu í ljósi þess að enn séu ekki allir fyrirvarar viðskiptanna uppfylltir. „Verði öllum fyrirvörum fullnægt og samningar gangi eftir, mun verðmat sölu OR á hlut sínum í HS Orku einnig ráðast af endanlegu uppgjöri í viðskiptum OR og Hafnarfjarðarbæjar og af því hvert verðmæti HS Orku verður metið á hverjum tíma," segir Guðlaugur.
Tengdar fréttir Segir bókfært tap vera 4 milljarðar króna Meirihlutinn í Reykjavík fór með rangt mál þegar virði Magma tilboðs var sagt 6,31. Niðurfærslur samkvæmt árshlutauppgjöri OR samsvara genginu 5,4 á hlut. Þetta segir Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. 27. nóvember 2009 16:18 Mest lesið Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Sjá meira
Segir bókfært tap vera 4 milljarðar króna Meirihlutinn í Reykjavík fór með rangt mál þegar virði Magma tilboðs var sagt 6,31. Niðurfærslur samkvæmt árshlutauppgjöri OR samsvara genginu 5,4 á hlut. Þetta segir Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. 27. nóvember 2009 16:18