Spáir einum mesta samdrætti einkaneyslu sem mælst hefur 4. nóvember 2009 11:23
Greining Nýja kaupþings spáir því að ein afleiðingin kreppunnar verði að einkaneysla dregst saman um rúm 30% á árunum 2008-2010. Gangi þetta eftir verður sá samdráttur einn sá mesti sem mælst hefur. Hins vegar fellur samdrátturinn að mestu leyti á innfluttar vörur og hagvaxtaráhrifin verða því minni en ætla mætti. Í ljósi þessa minnkar hlutdeild einkaneyslu í landsframleiðslu sem fellur undir 45% er líður á spátímabilið. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að Helstu þættir sem hamla frekari vexti einkaneyslu eru: Fallinn kaupmáttur, það er ráðstöfunartekjur heimila hafa rýrnað með skattahækkunum á sama tíma og raunlaun dragast saman. Veik króna, það er neysla heimila er almennt næm fyrir gengisþróun, þá einkum innflutt neysla. Ólíklegt er að veruleg gengisstyrking sé á næsta leyti. Lækkandi eignaverð, það er sú leiðrétting sem hefur átt sér stað á eignaverði hefur áhrif á neysluvilja heimila. Auðsáhrif koma almennt sterkt fram þegar kemur að neyslu heimila. Háir raunvextir , það er líklega munum við sjá þétt vaxtaaðhald út árið 2010 á sama tíma og verðbólgan fer hratt lækkandi. Áfram hátt atvinnuleysi, það er greiningin gerir ráð fyrir að atvinnuleysi haldist hátt út spátímabilið. Breytt neysluhegðun heimila, það er núverandi krísa mun koma fram í aukinni sparnaðarhneigð heimila og þar með minni neyslu. Daprar væntingar og óöryggi, það er aukin svartsýni dregur úr kaupgleði neytenda. Ef litið er á þróun íslenskrar hagsveiflu frá árinu 1945 má sjá að yfirleitt fylgir 1-2 ára samdráttur í einkaneyslu af loknu hverju vaxtarskeiði. Þá hefur samdrátturinn orðið vægari með árunum, sem má e.t.v. rekja til aðahaldsamrar peningamálastefnu á uppgangstímum sem gefi síðan eftir þegar dregur úr umsvifum í hagkerfinu. Á fyrri tíð var hins vegar öðruvísi farið að og gengi krónunnar fellt um tugi prósenta þegar kom að því að ná jafnvægi. Núverandi samdráttur virðist ætla að vera í svipuðum stíl með tilheyrandi áhrifum á neyslu, bakslagið mun því vara lengur og vera eitt það mesta sem mælst hefur. Óvissuþættir eru nokkrir, bæði jákvæðir og neikvæðir í þessari spá. Hvað hina neikvæðu varðar nefnir greiningin samtíma herðing ríkisfjármála og peningamála. Frekari skattahækkanir en boðaðar hafa verið eða hærri raunvextir hefðu neikvæð áhrif á einkaneyslu og hagvöxt almennt horft til næstu ára næstu ára. Ennfremur að veikist krónan umtalsvert frá því sem nú er verður samdráttur einkaneyslu meiri. Jákvæðu þættirnir eru sterkari króna en í spánni er gert ráð fyrir að krónan haldist áfram veik út spátímabilið. Taki hins vegar krónan að styrkjast frá núverandi gildi myndi það hafa jákvæð áhrif á neysluhegðun heimila. Þá nefnir greiningin að gangi atvinnuleysi hraðar niður gæti það haft áhrif til að koma hagkerfinu hraðar í gang. Einnig verði jákvætt ef vinnumarkaðurinn tekur fyrr við sér en útlit er fyrir gæti það aukið kaupgetu heimla og þar með neyslu.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira