Um 200 manns með aðstöðu á frumkvöðlasetrum 4. nóvember 2009 15:07 Á myndinni eru Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Kristín Ingólfsdóttir rektor HÍ.
Um 200 manns eru nú með aðstöðu á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands en áttunda frumkvöðlasetur miðstöðvarinnar var opnað með formlegum hætti í dag. Sex ný frumkvöðlasetur hafa verið opnuð eftir hrunið í fyrra og hafa um 150 störf myndast innan þeirra. Í tilkynningu segir að nýjasta frumkvöðlasetrið, Kím - Medical Park, er ætlað fyrirtækjum í heilbrigðistækni og skyldum greinum og hafa tólf hátæknisprotafyrirtæki fengið aðstöðu þar. Við opnun Kíms í dag kom fram að innan heilbrigðistækninnar felast mikil tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, enda markaður fyrir lækningatæki og heilsuvörur gríðarstór á heimsvísu. Nox Medical, eitt fyrirtækjanna á setrinu, kynnti starfsemina á opnuninni en það hefur á síðastliðnum þremur árum þróað og sett á markað fullkomið svefngreiningartæki fyrir börn jafnt sem fullorðna. Búnaðurinn er nú þegar kominn á markað í Evrópu og Bandaríkjunum í gegnum lækningavörudreifingarfyrirtækið CareFusion. Frá því að búnaðurinn fór í sölu í mars hefur hann selst langt umfram áætlanir fyrirtækisins og er nú gert ráð fyrir því að velta fyrirtækisins af þessum vörum verði yfir 120 milljónir íslenskra króna á þessu fyrsta söluári, að sögn Sveinbjarnar Höskuldssonar framkvæmdastjóra. Á meðal annarra fyrirtækja á setrinu eru SagaMedica, sem framleiðir heilsuvörur úr íslenskum lækningajurtum, Medical Algorithms sem vinnur að hugbúnaðargerð fyrir lækningatæki, Valamed sem er að þróa lyfjanæmispróf fyrir hnitmiðaðri lyfjameðferð og Líf-Hlaup sem vinnur að þróun lyfjasamsetningar til notkunar á slímhúðir. Fyrirtækin tólf eru nú með 35 starfsmenn en enn er laus aðstaða á setrinu.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira