Auðmenn fá beingreiðslur frá ríki vegna mjólkurkvóta Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. nóvember 2009 19:05
Fasteignafélagið Lífsval sem er í eigu nokkurra auðmanna er nú langstærsti jarðaeigandi landsins - að opinberum aðilum frátöldum - en fyrirtækið hefur verið stórtækt í uppkaupum á jörðum og á nú rúmlega 3.500 hektara lands. Fyrirtækið Lífsval er nú langstærsti jarðaeigandi á Íslandi og á nú hvorki meira né minna en 72 jarðir og sumarbústaðalönd. Fyrirtækið er í eigu nokkurra auðmanna en auk þeirra á Landsbankinn tæplega fimmtungshlut, en bankinn á auk þess veð í mun stærri hlut. Í stjórn félagsins eru Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs sem var einn eigenda fjárfestingarfélagsins Saxhóls, Ingvar J. Karlsson, stjórnarformaður K. Karlssonar, Guðmundur A. Birgisson á Núpum í Ölfusi, Hermann Már Þórisson, sem situr fyrir hönd Landsbankans, Ólafur Ívan Wernersson, tæknifræðingur og Gunnar Þorláksson. Lífsval fjárfestir í landi með gögnum og gæðum að engu undanskildu. Þar er átt við vatnsréttindi, há- og lághitaréttindi, mikla víðáttu, stang- og skotveiðiréttindi, námuréttindi og sjávarréttindi. Tvær jarðir félagsins eru á Suðurlandi, þrjátíu og tvær á Vesturlandi, átta á Vestfjörðum, sjö á Norðvesturlandi, fimmtán á Norðausturlandi og átta á Austurlandi. Fyrirtækið á meðal annars kúabú sem samtals eiga á aðra milljón lítra mjólkurkvóta eða rúm 1,5 prósent af heildarkvótanum sem skráður er á þrjár jarðir. Hver prósenta af mjólkurkvótanum þýðir hátt í fimmtíu milljónir króna á ári í beingreiðslur frá íslenska ríkinu. Landsbankinn tekur yfir stærri hlut verður það í reynd íslenska ríkið sem greiðir ríkisbankanum Landsbankanum beingreiðslur vegna mjólkurkvóta.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira