Allt fór af veggjum Lehmans 4. nóvember 2009 04:30 áhugasamir skoða verkin Troðið var út úr dyrum á uppboði á verkum í eigu þrotabús fjárfestingarbankans Lehman Brothers um helgina.Markaðurinn/ap
Öll listaverk seldust á þéttsetnu uppboði úr þrotabúi bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers sem haldið var hjá uppboðshúsi Freeman‘s í Philadelphia-borg á sunnudag. Bankinn fór í þrot um miðjan september í fyrra og hrinti fall hans fjármálaheiminum fram af bjargbrúninni, þar á meðal Glitni, Kaupþingi og Landsbankanum sem voru ríkisvæddir um hálfum mánuði síðar. Almennt var reiknað með að listaverkauppboðið, sem er það fyrsta af þremur, myndi skila í kringum einni milljón Bandaríkjadala, um 125 milljónum króna. Bandaríska stórblaðið Wall Street Journal segir kreppuna ekki hafa hert meira en svo að listunnendum að flest verkanna 238 sem boðin voru upp fóru á talsvert hærra verði en reiknað var með. Eitt verkanna, mynd af hundrað dala seðli með gylltu laufblaði eftir bandaríska listamanninn Tony King, fór á tífalt hærra verði en búist var við. Á uppboðinu voru meðal annars verk eftir Roy Lichtenstein, gjarnan kenndan við popplistastefnuna, auk fleiri verka eftir þekkta nútímalistamenn. Afrakstur uppboðsins, 1,34 milljónir dala, gengur upp í kröfur þrotabúsins. Það er þó dropi í hafið því skuldir bankans námu rúmum sex hundruð milljörðum dala þegar hann fór á hliðina.- jab
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira