Millistjórnendur Landsbankans vilja fjögurhundruð milljónir Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 4. nóvember 2009 18:49
Millistjórnendur gamla Landsbankans gera milljóna króna kröfur í þrotabúið vegna kaupréttarsamninga. Hæsta krafan nemur um fjögurhundruð milljónum króna. Siðlaust, segir þingmaður Vinstri grænna. Hluti af launakjörum stjórnenda bankanna voru kaupréttarsamningar sem veittu stjórnendum rétt til að kaupa hlutabréf í bönkunum á tilteknu gengi. Bankarnir báru sjálfir kostnað af kaupréttunum, þ.e. muninn á kaupverði og markaðsverði hlutabréfanna. Starfsmennirnir gátu beðið eftir því að gengi bréfanna hækkaði og nýtt kaupréttinn. Samningarnir voru oftast réttlættir með því að starfsmennirnir myndu leggja meira á sig ef velgengni fyrirtækisins yrði þeim í hag. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa millistjórnendur gamla Landsbankans gert kröfu í þrotabúið vegna kaupréttarsamninga. Með öðrum orðum, starfsmennirnir krefjast bóta vegna þess að þeir hefðu átt rétt á að kaupa hlutabréf í gjaldþrota fyrirtæki. Kröfurnar eru vel á annan tug og gæti fjölgað. Upphæðir krafnanna eru frá nokkrum milljónum upp í tugi milljóna króna. Hæsta krafan nemur um 400 milljónum króna. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segir eðlilegt að launakröfur séu forgangskröfur. Hinsvegar megi deila um það hvað geti talist til launa.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira