Vildi kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi 27. janúar 2009 11:18
Jon H. Nordbrekken stofnandi og eigandi Bank2 í Noregi reyndi fyrir jól að kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi. Ætlunin var að tæpur tugur af lykilstarfsmönnum miðlunarinnar myndu koma í vinnu hjá Bank2. Þetta gekk ekki eftir þrátt fyrir að viðkomandi starfsmenn væru jákvæðir gagnvart áformum Bank2. Samkvæmt frásögn á vefsíðunni e24.no strandaði málið á óeiningu milli skilanefndar Landsbankans og Bank2. Nordbrekken stofnaði Bank2 árið 2005 en um er að ræða fjármálafyrirtæki sem sérhæfir sig m.a. í lánaumsýslu, endurfjármögnun og fyrirtækjalánum. Bank2 hefur lengi haft áform um að bæta verðbréfamiðlun við starfsemi sína. Þeir reyndu fyrst að kaupa Norse Securities skömmu eftir að Bank2 var stofnað en á endanum var Norse Securities selt Íslandsbanka sem síðar varð Glitnir. Jon H. Nordbrekken segir í samtali við e24.no að þeir hafi átt í viðræðum við Landsbankamenn til að finna út hvort möguleiki væri á samningi um að Bank2 yfirtæki verðbréfamiðlunina. Þær viðræður hafi verið á jákvæðum nótum til að byrja með. Aðspurður um hvað hafi á endanum stoppað málið segir Nordbrekkan að það sé nokkuð sem hann vilji ekki tjá sig um.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira