Skuldabréf Nýja Landsbankans verður baggi á krónunni 2. desember 2009 08:45
Skuldabréf það sem Nýi Landsbankinn hefur gefið út til gamla Landsbankans mun verða töluverður baggi á krónunni á komandi árum þar sem það þarf að greiða í gjaldeyri. Upphæðin er 260 milljarðar kr. og þegar afborganir hefjast árið 2014 munu þær nema 60-70 milljörðum kr. á ári að mati greiningar Arion banka. Greiningin fjallar um málið í Markaðspunktum sínum. Þar segir að umræðan um vanda krónunnar hefur oft á tíðum einskorðast við eignir erlendra aðila hér á landi í ríkisbréfum og innlánum. Lítið hefur hinsvegar farið fyrir umræðu um 260 milljarða kr. skuldabréf sem Nýi Landsbankinn hefur gefið út til gamla Landsbankans og mun fyrr eða síðar verða skipt yfir í gjaldeyri. Fréttaflutningur af málinu var upphaflega á þá leið að greiðslur af láninu myndu strax hefjast og því yrði búið að eyrnamerkja í kringum 30 milljarða kr. af gjaldeyrissköpun þjóðarbúsins árlega næstu árin. Samkvæmt tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu verður hinsvegar ekki byrjað að greiða vexti og afborganir af láninu fyrr en árið 2014 og hefur þjóðarbúið því fengið ákveðinn gálgafrest í málinu. Hins vegar hefur fresturinn þau áhrif að áfallnir vextir og afborganir af höfuðstól lánsins dreifast yfir færri ár og því verða árlegar greiðslur hærri þegar byrjað verður að greiða af láninu árið 2014, eða í kringum 60-70 milljarðar kr. Það er mat greiningarinnar að erlent greiðsluflæði nemi 150 milljörðum kr. á ári tímabilið 2014 til 2018. Í þessu mati er gert ráð fyrir að erlendum skuldum ríkisins (um 1,6 milljarði evra) sem voru til staðar fyrirhrun verði velt áfram - hinsvegar er alls óvíst að það takist, takist það ekki verða vaxtagreiðslur nokkru lægri en höfuðstólsgreiðslur miklu hærri . Að sama skapi er gert ráð fyrir að ný lán, sem væntanlega verða tekin til styrkingar gjaldeyrisforða Seðlabankans, liggi að mestu óhreyfð og að þeim verði skilað á gjalddaga. Því koma einungis fram nettó vaxtagreiðslur af nýjum lánum hins opinbera. Verði gjaldeyrislánin hinsvegar notuð til að kaupa gjaldeyri veltur nettó kostnaðurinn á vaxtamuni við útlönd og gengi krónunnar. Vaxtagreiðslur hins opinbera úr landi verða um 50 milljarðar kr. á ári næstu árin. Þegar endurgreiðsla á IceSave skuldbindingunni hefst árið 2016 munu vaxtagreiðslurnar hinsvegar ná um 100 milljörðum kr. á ári. Inni í þessu mati er m.a. að vaxtagreiðslur vegna innlendra skuldabréfa í eigu útlendinga verða í kringum 30 milljarðar kr. næstu árin. Áætlaður vaxtakostnaður vegna gamalla lána ríkisins er í kringum 15 milljarðar kr. á ári. Árið 2012 falla til nettó vaxtagreiðslur vegna AGS lána. Árið 2015 bætast svo við nettó vaxtagreiðslur vegna annarra erlendra lántaka sem ríkið hyggur á að taka til styrkingar gjaldeyrisforða. Endurgreiðsla á skuldabréfi Nýja Landsbankans til þess Gamla hefst árið 2014. Í upphafi verða vaxtagreiðslurnar um 20 milljarðar kr. en sú upphæð fer lækkandi eftir því sem greiðist inn á lánið. Greiddir vextir vegna IceSave verða um 40-60 milljarðar kr. á ári frá og með árinu 2016. Hér er gert ráð fyrir að tekjur opinberra orkufyrirtækja dugi til að greiða vexti af þeirra lánum. Þó gæti sú staða komið upp að vaxtakostnaðurinn verði hærri verði háum lánum rúllað áfram í stórum stíl, þ.e. sjóðstreymi dugar ekki fyrir versnandi lánskjörum. Afborganir hins opinbera af höfuðstól verða takmarkaðar næstu árin samkvæmt mati greiningarinnar sem ræðst m.a. af greiðslufresti sem fengist hefur á IceSave skuldbindingu og skuldabréfi Landsbankans. Árið 2014 hefjast afborganir af höfuðstóli láns Nýja Landsbankans til Gamla Landsbankans. Upphaflega lánið nam 260 milljörðum kr. og verða árlegar greiðslur af höfuðstól því ríflega 50 ma.kr. á ári. Endurgreiðsla vegna IceSave hefst árið 2016. Hér er gert ráð fyrir að höfuðstóll lánsins verði um 90 miljarðar kr. og verði greiddur með jöfnum afborgunum m.v. að 88% náist upp í forgangskröfur. Til einföldunar er gert ráð fyrir að lánum orkufyrirtækja verði framlengt á gjalddögum, en þyngstu gjalddagarnir eru 2011 og 2012. Hið sama á við um erlend lán ríkisins sem voru til staðar fyrir hrun. Tækist ekki að velta lánunum áfram yrði útflæði gjaldeyris mun meira en hér er gert ráð fyrir. Í því samhengi er rökréttast að skoða endurgreiðsluferil erlendra lána hins opinbera að orkufyrirtækjum meðtöldum.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Sjá meira