Reiknar með óbreyttum stýrivöxtum á fimmtudag 7. desember 2009 12:02
Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni. Næsta vaxtaákvörðun nefndarinnar er á fimmtudaginn kemur. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í fundargerð síðasta fundar nefndarinnar kemur fram að nefndarmenn hafi þá verið sammála um að ef gengi krónunnar héldist stöðugt eða styrktist, og verðbólga hjaðnaði eins og spáð væri, ætti frekari slökun peningalegs aðhalds að vera möguleg. Gengi krónunnar á innlendum markaði er á svipuðum slóðum nú og hún var við vaxtaákvörðunina í byrjun nóvember. Gjaldeyrishöftin hafa verið hert á tímabilinu sem var þess valdandi að aflandsmarkaður lagðist nær af en gengi krónunnar hefur gefið umtalsvert eftir á þeim markaði. Verðbólgan hefur lækkað líkt og spáð var. Hún stendur nú í 8,6% en var 9,7% við síðustu vaxtaákvörðun. „Þrátt fyrir þessa þróun teljum við að peningastefnunefndin vilji gæta varúðar, líkt og hún hefur sjálf sagt, og að muni fylgja því sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lagt til að lækkun stýrivaxta verði hægfara," segir í Morgunkorninu. „Það er þó alls ekki útilokað að nefndin ákveði að lækka vexti nú en yrði það lítil lækkun ef af yrði þ.e. 25-50 punkta lækkun veðlánavaxta og að innlánsvextir yrðu lækkaðir svipað. Rétt er að geta þess að einn af fimm nefndarmönnum lagði það til síðast að vextir yrðu óbreyttir við síðustu vaxtaákvörðun. Næsti vaxtaákvörðunarfundur peningastefnunefndarinnar er 27. janúar og er líklegra að okkar mati að nefndin ákveði að lækka vexti þá."
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira