Reykjavík rekin með 12 milljarða króna halla 10. desember 2009 14:17
Rekstrarhallinn hjá Reykjavíkurborg á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 12 milljörðum kr. ef A og B hluti eru teknir saman. Þá hafa skuldir borgarinnar vaxið um tæpa 31 milljarða kr. en eignir hafa aukist um rúma 19 milljarða kr.Í tilkynningu til kauphallarinnar um uppgjörið fyrir tímabilið janúar til september segir að í fjárhagsáætlun tímabilsins fyrir A hluta var gert ráð fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði neikvæð um 3,2 milljarða króna og heildarniðurstaða tímabilsins neikvæð um 1,5 milljarða króna. Í áætlun tímabilsins fyrir A og B hluta var gert ráð fyrir um 2,7 milljarða króna jákvæðri niðurstöðu fyrir fjármagnsliði og jákvæðri heildarniðurstöðu um 14,1 milljarð króna.Niðurstaða A-hluta var 1,7 milljörðum krónum betri en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir og niðurstaðan fyrir fjármagnsliði 2,6 milljarða króna betri en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var hins vegar neikvæð um 12,0 milljarða í stað þess að vera jákvæð um 14,1 milljarð sem má rekja til neikvæðs fjármagnsliðar um 15,1 milljarð en ástæður hans má rekja til gengis íslensku krónunnar og erlendra skulda samstæðunnar, einkum Orkuveitu Reykjavíkur, eins og fram hefur komið í árshlutauppgjöri fyrirtækisins.Eignir A hluta eru 103,0 milljarðar, hækka úr 92,1 milljarði króna eða um 10,9 milljarða. Skuldir A hluta hækka úr 19,8 milljörðum í 29,7 milljarða eða um 9,9 milljarða og skuldbindingar hækka um 0,8 milljarða, úr 11,9 milljörðum í 12,7 milljarða. Eigið fé A hluta hækkar um 0,2 milljarða úr 60,5 milljörðum í 60,7 milljarða, sem skýrist af rekstrarniðurstöðu.Eignir A og B hluta nema nú 407,8 milljörðum króna og hafa vaxið um 19,2 milljarða króna á tímabilinu. Heildarskuldir A og B hluta að frátöldum skuldbindingum eru 290,3 milljarðar króna en voru 259,4 milljarðar króna í árslok 2008 og hafa því aukist um 30,9 milljarða króna. Skuldbindingar hækkuðu um 0,8 milljarða króna á tímabilinu. Eigið fé A og B hluta lækkar um 12,4 milljarða úr 116,3 milljörðum í 103,9 milljarða.Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A hluta og B hluta. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur málaflokka, og Eignasjóð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.Fyrirtækin eru: Aflvaki hf., Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningarhöllin hf., Jörundur ehf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira