Jólakort Samskipa renna til Fjölskylduhjálparinnar 18. nóvember 2009 14:48
Samskip hafa ákveðið að í stað þess að senda viðskiptavinum jólakort fyrir komandi jól renni andvirði þeirra til Fjölskylduhjálpar Íslands. „Það veitir okkur mikla ánægju að geta lagt okkar af mörkum til þessa góða starfs sem hér er unnið," segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa í tilkynningu um málið. Á dögunum afhenti hann Matthíasi Imsland, stjórnarformanni Fjölskylduhjálparinnar, ávísun að upphæð 250 þúsund krónur til staðfestingar á þessari jólagjöf frá félaginu. Ásbjörn kveðst þess fullviss að viðskiptavinir kunni bæði að virða og meta þessa ákvörðun félagsins og sendir þeim hugheilar jólakveðjur frá Samskipum. „Þetta kemur svo sannarlega að góðum notum og við þökkum Samskipum kærlega fyrir stuðninginn," segir Matthías Imsland. „Þörfin fyrir aðstoð er alltaf að aukast og það eru framlög af þessu tagi sem leggja grunninn að því sjálfboðaliðastarfi sem við hjá Fjölskylduhjálpinni höfum staðið fyrir á undanförnum árum." Öll framlög til Fjölskylduhjálparinnar fara til kaupa á matvælum og vikulega er úthlutað mataraðstoð til um 300 fjölskyldna sem eru í brýnni þörf. Fjölskylduhjálpin nýtur einnig góðs af beinum matargjöfum fyrirtækja og einstaklinga og nýlega hófst fjársöfnun meðal íslenskra fyrirtækja til að hægt verði að koma til móts við allar þær umsóknir um aðstoð sem Fjölskylduhjálin á von á nú fyrir jólin.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira