Viðskipti innlent

Seðlabankinn lækkar dráttarvexti niður í 17%

Dráttarvextir lækka og fara úr 18% niður í 17% fyrir tímabilið 1. janúar til 31.janúar 2010.

Þetta kemur fram á heimasíðu Seðlabankans sem birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa lækkað um 1 prósentustig frá síðustu dráttarvaxtarákvörðun.

Frá 1. janúar nk. verða vextir eftirfarandi: Vextir verðtryggðra lána lækka og verða 4,8% í stað 5,3%. Vextir af óverðtryggðum lánum lækka úr 9,0% niður í 8,5% og vextir af skaðabótakröfum lækka úr 6,0% í 5,7%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×