Eigandi aflandsfélags vill greiða 80 milljónir Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 22. desember 2009 18:37
Eigandi aflandsfélags í Lúxemborg hefur óskað eftir að fá að leiðrétta skattframtalið sitt og greiða um 80 milljónir króna í sameiginlega sjóði. Skattyfirvöld íhuga að stefna eigendum aflandsfélaga sem neita að upplýsa um fé í skattaskjólum. Skattyfirvöld hafa undanfarið unnið að því að greina eignarhald á íslenskum fyrirtækjum og tengsl íslenskra aðila við erlend félög í skattaskjólum. Um 400 félög hafa verið til skoðunar og nema upphæðirnar sem fóru inn í þessi félög milljörðum króna. Lægstu upphæðirnar sem fóru inn í eitt félag nema 50 milljónum króna en hæstu í kringum milljarð. Féð var ýmist fært sem eigið fé og í sumum tilvikum sem lán til eigenda sinna. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skattyfirvöldum tekist að greina hverjir raunverulegir eigendur um 60 félaga eru. Nú er óskað eftir upplýsingum um hvaða starfsemi hefur verið í þessum félögum. Ítrekað hafa eigendur neitað að gefa slíkar upplýsingar. Nýtt ákvæði í skattalögum segir þó að lögaðilum beri að veita upplýsingar um erlend dótturfélög sín. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu skattyfirvöld nota öll tiltæk ráð til að afla þessara upplýsinga en til skoðunar er að höfða mál gegn þeim sem neita að láta þær í té. Þegar hefur einn einstaklingur óskað eftir að fá að leiðrétta skattframtalið sitt. Sá átti svokallað 1929 félag í Lúxemborg en slík félög eru undanþegin frá skatti. Leiðréttingin auk 25 prósenta álagi mun nema um 80 milljónum króna. Sú upphæð færi langt með að reka æðsta dómstól landsins, Hæstarétt í heilt ár en samkvæmt fjárlögum kostar rekstur hans 105,8 milljónir króna á ársgrundvelli.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira