Stýrivexti í ellefu prósent 4. nóvember 2009 03:00 Þórður Friðjónsson
Ég tel að lækka eigi stýrivexti úr tólf prósentum í ellefu og innlánsvexti úr 9,5 prósentum í níu. Hér að baki liggja þau tímamót sem felast í fyrstu endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands. Þar með hefur stefnan í efnahagsmálum verið mörkuð fyrir næstu ár. Margt hefur gerst frá síðustu vaxtaákvörðun í lok september - og flest jákvætt. Fyrst ber þar að telja umrædda endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þessi endurskoðun leggur grunninn að efnahagsstefnunni, varðar þá leið sem við höfum ákveðið að fara út úr kreppunni. Í öðru lagi hefur náðst samkomulag um Icesave-málið, þótt Alþingi hafi ekki enn afgreitt það. Í þriðja lagi hafa kjarasamningar verið framlengdir. Loks hefur fjárlagafrumvarpið verið lagt fram og þótt þar eigi eftir að vinna í mörgum liðum hefur það að geyma mikilvægan leiðarvísi um áherslur stjórnvalda í ríkisfjármálum. Þannig hefur ramminn um efnahagslífið verið mótaður fyrir næstu ár. Þótt sitt sýnist hverjum um þennan ramma blandast engum hugur um að afar brýnt er að hann liggi fyrir - í því felast jákvæðu skilaboðin sem jafnframt gefa fullt tilefni til lækkunar vaxta. Þróun efnahagsmála hefur jafnframt um flest verið fremur hagfelld borið saman við spár, bæði hér á landi og erlendis. Að mínu viti er enginn vafi á að erfiðasti hjallinn er að baki á alþjóðavettvangi og hér innanlands hefur ýmislegt gengið betur en áætlað var. Í því efni nægir að benda á umskiptin í viðskiptum við önnur lönd, heldur minni samdrátt en spáð var og nokkru minna atvinnuleysi. Þann skugga ber helst á að verðbólgan er meiri en reiknað var með. Í mínum huga er þó enginn efi á að öll efnisleg hagræn rök styðja lækkun vaxta - og í raun meiri lækkun en hér er lagt til. Það sem vegur á móti, hvetur til að hægar verði farið í sakirnar, er ímyndarvandi þjóðarinnar. Mikil vaxtalækkun gæti leitt til lækkunar gengis krónunnar og fyrir vikið valdið aukinni verðbólgu. Jafnframt liggur í hlutarins eðli að það er afar þýðingarmikið að Seðlabankinn setji fram og skýri ákvörðun sína vel. Einkum þarf að skýra vel fyrir útlendingum að í raun felist lítil breyting á aðhaldsstigi efnahagslífsins í þessari vaxtalækkun.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira