Gunnlaugur gáttaður á RUV, krefst viðtals við útvarpsstjóra 20. nóvember 2009 14:11
Gunnlaugur Sigmundsson segir að hann sé gáttaður á fréttaflutningi Spegilsins á RUV af félagi hans GSSG Holding. Af þessum sökum hefur hann krafist þess að fá viðtal við Pál Magnússon útvarpsstjóra. „Ég hef átt þetta félag í níu ár og það er alls ekkert leyndarmál. Það getur skattstjóri vottað um. Ég hef greitt skatta af því allan tímann hérlendis," segir Gunnlaugur. Í umfjöllun Sigrúnar Davíðsdóttur í Speglinum er tekið fram að GSSG Holding sé félag í Lúxemborg sem er þjónustað af Havilland bankanum í Lúxemborg en sá banki var áður dótturfélag Kaupþings. Gunnlaugur er sá eini sem nafngreindur er í pistlinum og sérstaklega tekið fram að hann sé faðir Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins. „Ég skil ekki afhverju verið er að draga son minn inn í þessa umræðu og þar að auki skil ég ekki afhverju mitt félag er hið eina af 24 slíkum í eigu Íslendinga hjá Havilland sem er nafngreint í þessum pistli," segir Gunnlaugur. Fram kemur í máli Gunnlaugs að hann ætli m.a. að ræða við útvarpsstjóra hvort það sé tilviljun að hann er nafngreindur með þessum hætti á RUV. „Ég kom með harða gagnrýni á fréttaflutning RUV af öðru máli nýlega, gagnrýni sem fór mjög fyrir brjóstið á fréttastjóra RUV," segir Gunnlaugur. „Ég ætla að spyrja útvarpsstjóra hv ort eitthvað samhengi sé þar á milli." Fréttaflutningur sá sem Gunnlaugur vísar hér í fjallaði um götur og hverfi sem eru tilbúin undir byggingar en ekkert hefur verið byggt á vegna kreppunnar. Í fréttaflutningnum var rætt við Dag B. Eggertsson sem skellti skuldinni af þessum auðu svæðum á Sjálfstæðisflokkinn.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira