Stofnfjáreigendur í mál við Glitni Helga Arnardóttir. skrifar 2. nóvember 2009 18:34
Rúmlega hundrað og tuttugu stofnfjárhafar í BYR hyggjast leita réttar síns gagnvart Íslandsbanka vegna lána sem bankinn veitti þeim til kaupa á hlut í stofnfjáraukningu Byrs fyrir tveimur árum. Lögmaður eins hópsins segir alla hafa staðið í þeirri trú að engar persónulegar ábyrgðir væru á lánum. Fjöldi stofnfjárhafa tók lán hjá Glitni í stofnfjáraukningu Byrs í desember 2007, meðal annars þau 10 börn sem hafa verið til umfjöllunar. Íslandsbanki hefur nú lýst því yfir að barnalánin verði ekki innnheimt. Hins vegar þeir stofnfjáreigendur átján ára og eldri sem tóku lánin sitja nú uppi með þau og nema sum hver tugum milljóna króna. Þau verða innheimt á næsta ári. Rúmlega hundrað og tuttugu stofnfjárhafar hafa nú leitað réttar síns vegna málsins. Hróbjartur Jónatansson lögmaður annast mál rúmlega tuttugu manns og Lögmannsstofan lex sér um mál fyrir um hundrað stofnfjárhafa. Ásgeir Helgi Jóhannsson er lögmaður á lex. Þeir stofnfjárhafar sem fréttastofa náði tali af í dag óttast um stöðu sína og segja að útboðið hafi verið kynnt þannig að bréfin ein stæðu sem trygging fyrir greiðslu. Lántakan fæli ekki í sér persónulega ábyrgð. Ásgeir segir of snemmt að segja hvernig brugðist verði við þessu máli nú séu viðræður í gangi. Hann segir hins vegar ljóst að barnalánin hafi verið ólögmæt og vinda þurfi ofan af þeim gjörningum gagnvart Íslandsbanka og Byr.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira