KR vann í kvöld níu stiga sigur á Haukum, 65-56, í fjórða leik liðanna um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta. Þar með er ljóst að úrslitin um titilinn ráðast í oddaleik á miðvikudagskvöldið.
Leiknum var lýst beint á Vísi og má lesa lýsinguna hér að neðan.
Leik lokið: KR - Haukar 65-56
Haukum gengur lítið að skora og eru duglegir að brjóta. KR er að nýta vítin ágætlega og sigurinn aldrei í hættu.
Stig KR:
Hildur Sigurðardóttir 22 (12 fráköst)
Margrét Kara Sturludóttir 14
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 14 (9 fráköst)
Guðrún Þorsteinsdóttir 5 (8 fráköst)
Helga Einarsdóttir 5
Guðrún Ámundadóttir 4
Guðrún Sigurðardóttir 1
Stig Hauka:
Slavica Dimovska 17
Ragna Brynjarsdóttir 13
Monika Knight 10
Kristrún Sigurjónsdóttir 6
Guðbjörg Sverrisdóttir 6
Telma Fjalarsdóttir 4 (8 fráköst)
40. mínúta: KR - Haukar 62-54
Ekkert kemur úr sókn Hauka sem brjóta um leið og KR fær boltann. Hildur setur bæði niður og Haukar taka leikhlé. 59 sekúndur eftir. Nánast komið hjá KR og stefnir í oddaleik.
39. mínúta: KR - Haukar 61-54
Monika Knight "villar út" eftir að hafa brotið á Sigrúnu sem fer á vítalínuna og setur fyrra niður. 1:18 eftir.
38. mínúta: KR - Haukar 60-54
Hildur eykur muninn í sex stig og nær svo varnarfrákasti. KR með boltann og tæpar tvær eftir.
37. mínúta: KR - Haukar 58-54
Slavica með þrist og KR missir svo boltann í næstu sókn. Þrjár og hálf eftir og leikhlé tekið. Ótrúlega kaflaskiptur leikur - það er óhætt að segja það. KR með eitt stig í fjórða leikhluta - Haukar fimmtán.
35. mínúta: KR - Haukar 58-49
Það gengur ekkert hjá KR þessar mínúturnar. Aðeins eitt stig komið í leikhlutanum og Hildur var að klikka á tveimur vítaskotum.
33. mínúta: KR - Haukar 57-47
Það er allt annað að sjá til varnarleik Hauka og þeir hafa gengið á lagið og skorað átta fyrstu stigin í fjórða leikhluta. KR-ingar ekki komnir á blað enn. Þessi leikur er ekki dauður enn.
32. mínúta: KR - Haukar 57-41
Haukarnir komnir í pressuvörn og það virðist ætla að ganga aðeins betur. En betur má ef duga skal. KR vann 2. og 3. leikhluta samtals 45-17.
3. leikhluta lokið: KR - Haukar 57-39
Haukar skoruðu átta stig í öðrum leikhluta og níu í þriðja leikhluta. KR-vörnin er að virka vel þessa stundina - það er óhætt að segja það.
28. mínúta: KR - Haukar 53-36
KR er að stinga af. Sigrún Sjöfn með þrist og maður skyldi ætla að Haukar myndu endurskoða svæðisvarnarleikinn sinn. Haukar taka líka leikhlé í þessum töluðu.
25. mínúta: KR - Haukar 48-36
Hildur setur niður þrist og KR er að taka myndarlegt forskot í leiknum. KR er á 30-8 spretti sem er nokkuð gott.
22. mínúta: KR - Haukar 38-34
Slavica svarar fyrir Hauka. Brotið á henni í þriggja stiga skoti en hún hittir samt og klárar svo vítið líka.
21. mínúta: KR - Haukar 38-30
Síðari hálfleikur hafinn og KR skorar fyrstu stigin, rétt eins og í fyrri hálfleik. Það gera 20 af síðustu 22 stigum í leiknum.
Hálfleikur: KR - Haukar 34-30
Hildur með þrist undir lokin og KR skoraði sextán af síðustu átján stigum hálfleiksins. Búið að vera nokkuð um sveiflur í þessum leik til þessa.
Stig KR:
Margrét Kara Sturludóttir 10
Hildur Sigurðardóttir 10
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 5
Helga Einarsdóttir 4
Guðrún Þorsteinsdóttir 2
Guðrún Ámundadóttir 2
Guðrún Sigurðardóttir 1
Stig Hauka:
Ragna Brynjarsdóttir 9
Slavica Dimovska 6
Monika Knight 5
Guðbjörg Sverrisdóttir 4
Kristrún Sigurjónsdóttir 4
Telma Fjalarsdóttir 2
18. mínúta: KR - Haukar 29-28
Hörkuvörn hjá KR sem hefur skorað ellefu stig í röð í leiknum. Haukar vita ekkert hvað þeir eiga að gera.
16. mínúta: KR - Haukar 23-28
Mikill hraði í þessum leik. Sigrún Sjöfn setti niður þrist og minnkaði muninn aftur fyrir KR-inga en annars hefur verið mikið um hraðar sóknir og mistök eftir því.
13. mínúta: KR - Haukar 18-23
Hildur Sigurðardóttir aftur komin í sóknarleik KR og þá ganga hlutirnir betur. Haukastúlkur eru þar að auki að hitta illa í sókninni þessar mínúturnar.
1. leikhluta lokið: KR - Haukar 12-22
Þvílíkur endir á fyrsta leikhlutanum. Haukar skoruðu síðustu níu stigin í leiknum. KR réði ekkert við svæðisvörn Hauka sem hirtu öll fráköst í vörninni og skoruðu auðveldar körfur í kjölfarið. Slavica Dimovska kláraði svo leikhlutann með þristi.
8. mínúta: KR - Haukar 12-13
Knight heldur áfram að valda usla í vörn heimamanna og Haukar eru komnir yfir. Það er mikil harka í leiknum og útlit fyrir æsispennandi rimmu.
5. mínúta: KR - Haukar 10-9
Monika Knight er að spila glimrandi góðan sóknarleik og stendur fyrir því að Haukar eru komnir vel inn í þennan leik.
3. mínúta: KR - Haukar 7-2
Kara setur niður þrist og KR komið með fimm stiga forystu. Heimamenn að spila ágætisvörn.
1. mínúta: KR - Haukar 2-0
Leikurinn hafinn og KR skorar fyrstu stigin í leiknum.
19.12 Allt að verða klárt
Hér er verið að kynna liðin til leiks og sérstaklega gaman að sjá hversu vel er mætt á þennan leik. Það er örugglega eitthvað eftir af þeirri mögnuðu spennu sem ríkti á síðasta leik sem fór fram í DHL-höllinni.
19.00 Velkomin til leiks
Vísir heilsar hér frá KR-heimilinu þar sem senn fer að hefjast viðureign KR og Hauka í úrslitum Iceland Express deildar kvenna. KR verður að vinna í kvöld til að knýja fram oddaleik, annars verða Haukar Íslandsmeistarar í kvöld. Flóknara er það ekki.