Eigið fé OR gæti þurrkast út vegna stöðutöku með krónunni 7. desember 2009 09:44
Skuldastaða Orkuveitu Reykjavíkur (OR) vægast sagt illa út. Fyrirtækið hefur tekið mjög stóra stöðu með krónunni gegnum erlendar lántökur og hefur goldið þess. OR mun vitaskuld hagnast ef krónan styrkist á nýjan leik en að sama skapi myndi u.þ.b. 20% gengisveiking fara langt með að þurrka út eigið fé Orkuveitunnar ef gengisvarnir eru engar.Um 30% af erlendum skuldum OR eru í svissneskum frönkum og japönskum jenum eða um 60 milljarðar kr. Svo miklar skuldir í þessum lágvaxtamyntum verður að lýsa ákveðinni áhættutöku hjá fyrirtækinu.Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem fjallar er um síðasta uppgjör Orkuveitunnar. Þar segir ennfremur að um 40% af erlendum skuldum Orkuveitunnar séu í evrum á meðan erlendar tekjur fyrirtækisins (raforkusölusamningar tengdir álverði) eru í dollurum. En í því samhengi er rétt að benda á gengisþróun evru/dollars hefur verið Orkuveitunni afar óhagstæð síðustu misseri.Orkuveita Reykjavíkur birti 9 mánaða uppgjör sitt þann 27. nóvember síðastliðinn sem varpar ljósi á þrönga fjárhagsstöðu fyrirtækisins eftir að kreppan skall á. Skuldir OR hafa tvöfaldast við gengishrun krónunnar.Um 90% af vaxtaberandi skuldum OR eru í erlendri mynt á sama tíma og um 19% tekna fyrirtækisins eru í erlendum gjaldmiðli. Gengisfall krónunnar hefur bæði rýrt eiginfjárstöðu og skert sjóðstreymi fyrirtækisins. Á móti kemur að vaxtalækkanir ytra vegna fjármálakrísunnar hafa minnkað vaxtakostnað OR í erlendri mynt og það hefur komið til góða. Hins vegar er lánshæfi OR nú í ruslflokki sem mun gera endurfjármögnun lána og töku nýrra bæði dýrari og erfiðari. Einnig er hætt við að versnandi fjárhagsstaða fyrirtækisins leiði til uppsagnar á núverandi lánasamningum.Þessi staða hlýtur að sníða OR mjög þröngan stakk á næstu misserum nema nýtt eigið fé verði sett inn í fyrirtækið eða krónan styrkist verulega. Hvorugt virðist mjög líklegt til skamms og meðallangs tíma. Að því gefnu þarfnast það skýringa við hvernig félagið geti eitt og óstutt komið metnaðarfullum áætlunum um nýfjárfestingar og áframhaldandi vöxt í framkvæmd með aukinni skuldsetningu.Aukinheldur er ómögulegt að skilja hugmyndir um arðgreiðslu frá fyrirtækinu til eigenda í ljósi stöðu þess. Ekki verður annað séð en að OR muni eiga fullt í fangi við endurfjármögnun útistandandi lána, hvað þá ef kemur til aukinnar lántöku. Hærra álverð mun fyrirsjáanlega auka tekjur OR að einhverju marki en þegar litið er aðeins fram í tímann hlýtur slæm fjárhagsstaða fyrirtækisins að varpast yfir í orkuverð til almennra notenda (einstaklinga, fyrirtækja o.s.frv.) á höfuðborgarsvæðinu- þar sem helsti orkumarkaður fyrirtækisins er.Staðan er einfaldlega sú að fyrirtækið þarf aukna framlegð til þess að geta staðið straum af hærri fjármagnskostnaði og hárri skuldsetningu, að því er segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Viðskipti innlent Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Sjá meira