Þórunn og Þorgerður fengu flestar útstrikanir 28. apríl 2009 11:53
Flestir strikuðu yfir nöfn Þórunnar Sveinbjarnardóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í Suðvesturkjördæmi í kosningunum um helgina eða um eitt þúsund sinnum. Útstrikanirnar hafa þó engin áhrif á röð þingmanna í kjördæminu. Reyna á að ljúka við að fara yfir útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmunum í dag. Kjörstjórn í Suðvesturkjördæmi hefur lokið við að fara yfir útstrikanir í listum í kosningunum og hafa þær engin áhrif á röð þingmanna í kjördæminu. Flestir strikuðu yfir nafn Þórunnar Sveinbjarnardóttur þingmanns Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra eða hátt í tólf hundruð sinnum út. Hátt í tvö þúsund manns hefðu hins vegar þurft að strika nafn hennar út svo hún færðist neðar á lista. Þá strikuðu rúmlega níu hundruð yfir nafn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Hátt í sautján hundruð manns hefðu þurft að strika yfir nafnið svo hún færðist neðar. 350 strikuðu Bjarna út Tæplega þrjú hundruð og fimmtíu strikuðu yfir nafn Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins og rúmlega þrjú hundruð fyrir nafn Árna Páls Árnason oddvita Samfylkingarinnar í kjördæminu. Rúmlega þrjú hundruð og fimmtíu strikuðu yfir nafn Sivjar Friðleifsdóttur sem leiddi lista Framsóknarflokksins í kjördæminu og tæplega hundrað og fimmtíu yfir nafn Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem skipaði efsta sæti hjá Vinstri-grænum. Þá strikuðu um hundrað og fimmtíu yfir nafn Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra. Þegar hefur komið í ljós að í Suðurkjördæmi færist einn þingmaður niður um eitt sæti vegna útstrikana. Það er Árni Johnsen. Sjálfstæðisflokkurinn á þrjá þingmenn í kjördæminu og var Árni annar þingmaður flokksins og heldur því sæti á þingi. Mikið var um útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og hefur því tekið töluverðan tíma að fara yfir þær. Búist er við að það klárist í dag.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira