Fyrsta útskrift úr Viðskiptasmiðjunni 2. desember 2009 05:00 Svanlaug Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá Klaki, og Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit, nýsköpunarmiðstöðvar. „
Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vonum. Þróunin á fyrirtækjum sem hafa farið í gegnum Viðskiptasmiðjuna hefur verið ótrúleg,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöðinni Klaki. Klak stendur að Viðskiptasmiðjunni, sem er námsbraut á háskólastigi með það að markmiði að fyrirtæki verði til og fari í rekstur á meðan á námi aðstandenda stendur. Í næstu viku verður fyrsta útskriftin en nemendurnir hófu ýmist nám haustið 2008 eða um áramótin síðustu. Svanlaug segir þá sem koma í námið vera komna með hugmynd að fyrirtæki, sem sum hver séu þegar í rekstri. Aðstandendur eigi það sameiginlegt að vera tilbúnir til að taka leiðbeiningum og þiggja sérfræðihjálp sem nýtist þeim til að koma sínu fyrirtæki áfram. „Það er svo mikil þekking til innan sprotafyrirtækja en það er ekki hægt að finna alla sérfræðiþekkinguna hjá einni eða tveimur manneskjum og því er námið mjög gagnlegt.“ Á fyrsta misseri námsins er boðið upp á örnámskeið í ýmsu sem snýr að fyrirtækjarekstri. Á annarri önn fá fyrirtækin aðgang að sérfræðingum á ólíkum sviðum. Á síðustu önninni er boðið upp á ráðgjafastjórn fyrir fyrirtækið sem þá er komið í rekstur ef það var það ekki fyrir. „Það eru margir sem hafa ekki trú á sprotastarfsemi. En ef þú hefur trú á henni þá er mjög hollt að koma sér á stað þar sem fólk er tilbúið til að gagnrýna,“ segir Svanlaug og bendir á að í raun sé erfitt að sjá fyrirfram hvaða viðskiptahugmyndir slái í gegn en hún sé mjög ánægð með þau sem þegar hafa farið í gegnum námið. Þar á meðal eru Gogoyoko, Hafmynd, Trackwell og Stjörnu-Oddi. Nánari upplýsingar um námið er að finna á www.klak.is.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira