Ríkið sparar 100 milljarða á samningum við skilanefndir 2. desember 2009 08:11
Ríkið mun spara um 100 milljarða kr. á samningum sínum við kröfuhafa Glitnis og Kaupþings. Upphaflega stofnaði ríkissjóður skuldabréfaflokk upp á 30 milljarða kr. til að standa straum af kostnaði við endurreisn stóru bankanna þriggja en nú er ljóst að sá kostnaður verður mun minni.Hagfræðideild Landsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni í framhaldi af því að ákveðið hefur verið að kröfuhafar eignist 87% hlutafjár í Arion banka og að afgangurinn haldist í eigu ríkissjóðs. Í samkomulaginu felst að skilanefnd Kaupþings fyrir hönd kröfuhafa sinna leggur fram 66 milljarða kr. eiginfjárframlag til Arion banka í stað ríkisins og eignast þar með 87% hlutafjár bankans.Við upphaflega endurfjármögnun Arion bankans (þá Nýja Kaupþings) skuldbatt íslenska ríkið sig til að leggja bankanum til 72 milljarða kr. í eigið fé, en vegna ofangreinds samkomulags mun ríkið leggja bankanum til 8 miljarða kr. í eigið fé auk 25 milljarða kr. í formi víkjandi láns. Samkvæmt tilkynningu mun eiginfjárþáttur A því vera 12% en að teknu tilliti til víkjandi lánsins nemur eiginfjárgrunnur bankans 16%.Ríkissjóður stofnaði nýjan skuldabréfaflokk, RIKH 18 1009, til þess að standa straum af endurfjármögnun nýju bankanna þriggja. Bréfið er vaxtagreiðslubréf með breytilegum vöxtum sem breytast með vöxtum á viðskiptareikningum innlánsstofnana í Seðlabankanum. Þessir vextir standa nú í 9% og munu fylgja þróun stýrivaxta.Heildarfjárhæð útgáfunnar var upphaflega 300 milljarðar kr. þar sem hún átti að standa undir endurfjármögnun þriggja banka, Íslandsbanka, Arion banka (áður Nýja Kaupþings) og Landsbankans.Við samkomulagið skilar Arion ríkinu jafnvirði 66 milljarða kr. í formi RIKH 18 og fær samsvarandi upphæð frá skilanefndinni. Fjárhagsstaða ríkissjóðs mun því batna sem þessu nemur en þar fyrir utan minnkaði þörf á eiginfjárframlagi um 37 milljarða kr. þegar ákveðið var að kröfuhafar Glitnis myndu eignast 95% í Íslandsbanka.Með því að bankarnir tveir komist að mestu í eigu kröfuhafa sparar ríkissjóður því rúmlega 100 milljarða kr. á árinu. Við ríkjandi aðstæður í ríkisfjármálum og yfirvofandi skattahækkanir eru þessar niðurstöður því jákvæðar fyrir ríkissjóð.
Mest lesið Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Hafa ekki valið enskt heiti fyrir Kerið Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira