Spannar litróf atvinnulífsins 2. desember 2009 05:00 Forstjóri Kauphallarinnar gerir ráð fyrir því að litrík fyrirtækjaflóra verði skráð á markað í Kauphöllinni eftir fimm ár. Markaðurinn/gva „
Við teljum að eftir þrjú til fimm ár verði Kauphöllin búin að ná upp sínum fyrri styrk,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar. Þórður sagði í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku útlit fyrir að fimmtán fyrirtæki verði skráð á markað á næsta ári og verði þau allt að þrjátíu í lok árs. „Við vitum nú þegar um allnokkurn fjölda sem vill inn en er ekki tilbúinn til þess á næsta ári,“ segir hann. Til samanburðar voru 75 fyrirtæki skráð á markað í kringum 2001 og höfðu þau þá aldrei verið fleiri. Þar af voru um 30 sjávarútvegsfyrirtæki, olíufélög og fleiri fyrirtæki í svipuðum dúr. Þórður gerir ráð fyrir að fyrirtækin sem fari á markað verði nokkuð minni en þau sem þar hafi verið í kringum hrunið, sum hver lítil. Hann telur líklegt að skráð fyrirtæki muni verða þverskurður af atvinnulífinu hér og megi gera ráð fyrir að á meðal þeirra verði sjávarútvegsfyrirtæki, úr orkugeiranum og smásölufyrirtæki. Þá megi ekki útiloka að bankarnir leiti aftur út á markaðinn auk þekkingarfyrirtækja, sprotafyrirtækja sem komin séu á ákveðinn stall. Þau verði skráð á hliðarmarkaðinn First North. „Við munum væntanlega verða komin með hlutabréfamarkað sem verður orðinn svipaður að stærð og á Norðurlöndunum,“ segir Þórður og bætir við að hugsanlega kunni markaðsverðmæti þeirra að samsvara einni landsframleiðslu. Gróflega er það þrisvar sinnum stærra en Kaupþing var eitt og sér þegar best lét. Helsti óvissuþátturinn felst í samrunum fyrirtækja, að sögn Þórðar. Gangi það eftir munu færri fyrirtæki sækjast eftir skráningu en ella. Þau verði hins vegar stærri.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira